utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Við höfum tekið þessa umræðu áður og það er sjálfsagt að taka hana aftur. Ef við tökum þetta saman þá var hér farið í skýrslugjöf og það er sjaldan, ég man í fljótu bragði ekki eftir því þegar þingmenn hafa komið fram með skýrslubeiðni, að orðið hafi verið við henni með þeim hætti og hér var gert. Ef menn skoða skýrsluna, því það sem skiptir máli er hvað stendur í henni, er hún mjög yfirgripsmikil skýrsla um EES-samstarfið. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að ég treysti öllum hv. þingmönnum og reyndar allri þjóðinni og svo sannarlega hv. þm. Birgi Þórarinssyni til að meta það hvað honum finnst vera kostur og hvað honum finnst vera galli. Ég held að einhverjir skýrsluhöfundar á vegum utanríkisráðherra þurfi ekkert að mata það ofan í hv. þingmenn. En ég held að það sé lykilatriði og hafi verið afskaplega mikilvægt að draga fram staðreyndir og upplýsingar. Það sem einum finnst fallegt finnst öðrum ljótt. Það er gömul saga og ný.