150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra. Þetta er náttúrlega ekkert svar. Hvað finnst einum fallegt og hvað finnst öðrum ljótt? Það er ekkert svar í þessari umræðu. Þetta er ósköp einfalt, það þarf að fá það fram hjá sérfræðingum, sérfræðingum ráðuneytisins, hverjir kostirnir og gallarnir eru, ekki ávinningur. Það þarf að fara eftir því sem beðið er um. Það er hlutverk framkvæmdarvaldsins. Þegar Alþingi biður um skýrslu af þessu tagi, og það er skýrt orðað hvað er verið að biðja um, þá á að fara eftir því. Það var bara ekki gert. Við þurfum ekki einhverjar ræður eða skýrslur til að mæra samskipti okkar við Evrópu, bara raunhæfa greiningu á kostum og göllum. Þetta er ósköp einfalt og menn eiga ekki að vera hræddir við það. Þetta er það sem Miðflokkurinn lagði áherslu á og ítrekaði í þrígang. Jú, skýrslan var gerð en hún er ekki í samræmi við beiðnina. Erindisbréfið er ekki sambærilegt við beiðnina. Ég ætla ekkert að halla á þá höfunda sem gerðu þessa skýrslu,(Forseti hringir.) þeir unnu náttúrlega samkvæmt erindisbréfinu. Það er nokkuð ljóst, hæstv. ráðherra, að það var ekki farið eftir því sem beðið var um.