150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:35]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er bara hjartanlega ósammála hv. þingmanni, í fyrsta lagi um að ekki hafi verið farið eftir því sem beðið var um. Þessi gagnrýni kom mjög seint fram. Ég held að vísu, þó að það sé aukaatriði, að hv. þm. Ólafur Ísleifsson hafi verið í Flokki fólksins þegar hann bað um þessa skýrslu en það kann að vera misminni. Ég verð að vísu að viðurkenna að ég var örlítið hræddur þegar ég heyrði hv. þingmann, sem fer oft með prýðismálflutning hér, segja að það þyrfti einhverja sérfræðinga til að segja okkur hvað væru kostir og gallar. Ég segi fyrir mig, ég læt ekki neinn sérfræðing segja mér hvað eru kostir og gallar og hef aldrei gert það og ég mun aldrei gera aldrei. Aldrei. Mér finnst það orðið svolítið sérkennilegt ef þjóðkjörnir fulltrúar eru að kalla eftir því, að þeir þurfi sérstaka sérfræðinga til að segja þeim hvað eru kostir og hvað eru gallar. (Gripið fram í: … misskilningur.) Við höfum það bara alveg á hreinu. Hér er grundvallarágreiningur. (Gripið fram í.) Ég mun aldrei láta sérfræðing segja mér hvað eru kostir og hvað eru gallar. En ég vil gjarnan að þeir sem þekkja best til kalli eftir staðreyndum og leggi þær á borðið. (Gripið fram í.) Síðan geta allir (Forseti hringir.) metið það hvað eru kostir og hvað eru gallar. Og það þarf enga hjálp við það, í það minnsta ekki í þeim flokki sem ég er í.