utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Við ræðum skýrslu utanríkisráðherra, ágæt fyrir margra hluta sakir. Það er eitt og annað sem er endurnýtt og endurunnið en það er engu að síður vert að geta þess að ákveðin jákvæð skref hafa verið tekin og að mínu mati ber þar hæst aukning varðandi þróunaraðstoð, betra utanumhald utan um alla þróunarhjálp og núna í Covid-málum er verið að efla það. Ég vil líka þakka sérstaklega borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og því starfsfólki sem hefur komið að því að hjálpa fólkinu okkar heim, svarað spurningum og haldið utan um það eins og kostur er, verandi í erfiðri aðstöðu m.a. í útlöndum og við þær aðstæður sem þar eru.
Ég verð að segja eins og er, eftir að hafa hlustað á andsvör ráðherra sem voru ekki mjög upplýsandi og hvað þá uppbyggileg, að ég saknaði þess að fá svör varðandi framtíðarsýnina, svör varðandi það að fá að tala um alþjóðamál. Þó að við vitum það alveg og ég er fegin að heyra að m.a. hæstv. ráðherra er með það nokkuð vel á hreinu, að við í Viðreisn viljum klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og fara lengra á þeim vettvangi, þá gerum við okkur líka grein fyrir því að það er erfitt að taka þá ákvörðun núna með bæði hæstv. ráðherra og þann meiri hluta sem hér er. En hvað getum við gert núna í þeim fordæmalausu aðstæðum sem við búum við núna? Aðstæður fyrir Covid kölluðu í rauninni líka á þá spurningu.
Ég ætla að fara yfir það betur á eftir að við þurfum einmitt að kortleggja stöðu okkar Íslendinga í alþjóðlegu samhengi og reyna að draga svolítið fram hvar við viljum bera niður. Hvernig viljum við huga að hagsmunum okkar til skemmri og lengri tíma? Hæstv. utanríkisráðherra talaði um, og ég var mjög hugsi yfir því, að við hefðum ekki tekið, eins og hann orðaði það, stórpólitíska umræðu um EES. Við unnum þessa skýrslu sem er, eins og ég gat um áðan, fortíðarspegill, en hún segir sögu og það er erfitt að móta og marka skref til framtíðar öðruvísi en að skilja söguna svolítið vel. Sú skýrsla dregur vel fram mikilvægi þess að við Íslendingar gerum allt til þess að skoða, af fullri einurð og einlægni og af krafti, ekki eftir hentistefnu eða einhverjum vinasamböndum hér og þar á hverjum tíma, hvort sem það er út af Brexit eða einhverju öðru, heildarhagsmuni landsins til lengri tíma. Skýrslan dró mjög vel fram að við Íslendingar jukum hagsæld okkar í gegnum EES-samstarfið. Við bjuggum til betra umhverfi fyrir neytendur, fyrir samkeppni o.s.frv., algerlega ómetanlegt samstarf, en við þurfum að huga að framtíðinni af því það er svo margt sem er breytt.
Ég vil nefna það sem dregið er fram í þeirri þingsályktunartillögu sem við í Viðreisn og fleiri þingmenn úr fleiri flokkum höfum lagt fram að hafi heimsmyndin hafi verið breytt fyrir Covid er hún gjörbreytt í dag í miðjum kórónuveirufaraldri. Ég vil draga fram nokkra þætti. Það er Covid í dag. Við erum að sjá ákveðin teikn á lofti sem eru vond, m.a. innan Evrópusambandsins, um að þjóðir séu að gefa afslátt á lýðræðinu á þessum tímum. Stórir miðlar sem hafa m.a. fjallað um ástandið í Ungverjalandi, segja: Lýðræðið er ekki að virka lengur eins og það á að gera í Ungverjalandi og sömu leið eru m.a. Serbía, Svartfjallaland og Pólland að fara. Þetta er hættulegt. Þetta er hættulegt af því að Evrópa hefur verið vagga lýðræðisins svo lengi. Þetta vekur okkur til umhugsunar og á að gera um hvernig við viljum haga okkar samskiptum, bæði við það svæði en líka Bandaríkin. Þar er hætta á ákveðinni skrumskælingu lýðræðisins eftir því hvernig Bandaríkjaforseti hagar sér hverju sinni, fyrir utan þá stóru heilbrigðishættu sem felst í þessum litla fyrirsjáanleika í ákvörðunartöku hans.
Þegar gjaldmiðillinn hrundi og bankarnir féllu árið 2008 kom í ljós að við Íslendingar áttum ekkert mjög mikið skjól. Afstaða Norðurlandanna mótaðist m.a. afstöðu annarra eins og Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem blessunarlega kom einmitt eftir hrunið og aðstoðaði okkur. Við vorum ekki fullgildir aðilar að Evrópusambandinu þrátt fyrir innri markaðinn og þannig gátum við ekki sótt þangað pólitískan styrk og þrátt fyrir ágæta reynslu kaldastríðsáranna, m.a. í samskiptum við Bandaríkin, þá skelltu Bandaríkin í lás. Öll sú atburðarás vekur auðvitað upp spurningu um hvort Ísland þurfi ekki að huga að breytingum og frekara pólitísku skjóli. Það sama gildir um Kína. Kína verður forysturíki heimsins á næstu áratugum og Ísland þarf eins og aðrar þjóðir að eiga mikil og sterk og góð samskipti við Kínverja. Ólík hugmyndafræði landanna skapar hins vegar augljósar hættur fyrir okkur og hvað þá fyrir land sem er lítið eins og Ísland. Við skulum átta okkur á því að í tímans rás hefur pólitískt skjól Evrópuríkja í auknum mæli færst frá Atlantshafsbandalaginu til Evrópusambandsins. Það er mikilvægt fyrir okkur að minna okkur sjálf á að Sovétviðskipti okkar Íslendinga á fyrri hluta kaldastríðsáranna hefðu ekki verið möguleg án verulegra pólitískra áhrifa Sovétríkjanna á íslensk málefni, sagan segir okkur það. Við skulum læra af þeirri sögu líka. Við höfðum síðan á endanum skjól innan Atlantshafsbandalagsins en eins og ég segi er skjól Evrópuríkja að færast svolítið frá Atlantshafsbandalaginu inn í Evrópusambandið. Þess vegna skiptir máli að við svörum spurningunni hvort öflugri eða dýpri alþjóðleg og fjölþjóðleg samvinna geti styrkt stöðu Íslands í samskiptum við Kína og önnur voldug ríki.
Það er svo margt sem segir okkur að við verðum að huga að því hvernig við ætlum að gera þetta og ekki síst loftslagsmálin. Við sjáum það í dag að vísindamenn voru að vara okkur við Covid. Það voru teikn á lofti, það voru ýmsir vísindamenn sem sögðu: Það kemur svona veira. En að mörgu leyti voru menn ekki að hlusta. Þess vegna eigum við að læra af því og hlusta m.a. á færustu vísindamenn heimsins sem hafa ítrekað varað við því að ef ríkin, ekki síst iðnríkin, fari ekki að gera eitthvað drastískt, eitthvað stórkostlegt, taka einhver stór skref í þá veru, þá fer illa. Í þeim málum er engin þjóð eyland, allur árangur á sviði loftslagsmála er kominn undir alþjóðlegri samvinnu. Bandaríkin hafa fjarlægst fjölþjóðasamstarf á þessu sviði en að mínu mati hefur Evrópusambandið náð markverðum árangri á sviði loftslagsmála, en það er ekki nóg. Bandaríkin hafa líka lamað starf Norðurskautsráðsins í loftslagsmálum. Það getur vel verið að utanríkisráðherra sé ekki sammála mér um það en ég er eindregið á því að Bandaríkin hafa lamað það starf á sviði loftslagsmála þar sem við Íslendingar höfum farið með formennsku. Það er ólíklegt að það náist árangur í loftslagsmálum án þess að alþjóðlegt, fjölþjóðlegt samstarf verði í forystu. Þess vegna verðum við m.a. að leita svara við þeirri spurningu hvernig við Íslendingar tökumst á við loftslagsvána í alþjóðlegu samstarfi.
Síðan getum við nefnt alþjóðavæðinguna, fjölþjóðafyrirtæki sem hafa vaxið þannig að þau eru öflugri og sterkari en einstök ríki. Við sjáum að Evrópusambandið og ríki ein og sér eiga mjög erfitt með að taka á stórfyrirtækjunum, eins og Google og Facebook og Apple og hvað þau heita öll, nema saman. Þess vegna er fagnaðarefni að neytenda- og samkeppnismálin hafa verið fókuspunktur hjá m.a. Margrete Vesthager sem hefur tekið þessi stórfyrirtæki svolítið á beinið. Við Íslendingar þurfum að spyrja okkur hvernig við ætlum að haga okkar samvinnu og samstarfi og hvernig hagsmunum okkar er best borgið þar. Þess vegna er ég að undirstrika það að kalla eftir einhverri framtíðarsýn, framtíðarnálgun, að við undirbúum okkur fyrir framtíðina með því að kalla til sérfræðinga, kalla til fólk úr öllum flokkum til þess að fara yfir það hvernig við getum styrkt stöðu Íslands á alþjóðavettvangi til framtíðar, hvort við ætlum að fara leið m.a. tvíhliða samninga eða fjölþjóðasamstarfs. Við þurfum að vera undirbúin. Þótt við sem flokkar höfum ákveðnar skoðanir um hvert eigi að fara, í guðanna bænum, notum alla vega tímann núna til að vera undirbúin undir næsta áfall, undir næstu ákvörðun, stóru utanríkispólitísku ákvörðunina sem við þurfum að taka. Hún kemur fyrr en síðar. (Forseti hringir.) Þá er best fyrir okkur Íslendinga og Alþingi Íslendinga að við höfum unnið heimavinnuna. (Forseti hringir.) Hún er eftir og hún er m.a. á ábyrgð utanríkisráðherra.