utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Það er gott að það sé undirstrikað að hæstv. utanríkisráðherra er formaður Norðurskautsráðsins. Þá er vert að rifja upp að á sínum tíma höfðu bandarískir embættismenn samþykkt yfirlýsinguna hvað varðar loftslagsbreytingar innan Norðurskautsráðsins. Síðan kemur utanríkisráðherra Bandaríkjamanna á fundinn og þar neitar hann að taka orðið loftslagsbreytingar inn í yfirlýsingu utanríkisráðherra Norðurskautsráðsins. Er hæstv. ráðherra formaður ráðsins? Er hann búinn að gleyma þessu? Svo kemur hann hingað og segir að Bandaríkjamenn hafi ekki haft nein áhrif á neitt af þessu. Mér finnst þetta vera metnaðarleysi í loftslagsmálum. Þarna hefði ég viljað sjá Íslendinga spyrna fastar niður fótum. En Norðurlandaþjóðirnar gerðu þetta saman. Það þurfti að halda friðinn. Gott og vel. En þetta er dæmi um það sem ég segi að sé ógn við íslenska hagsmuni þegar Bandaríkin beinlínis neita að taka inn í yfirlýsingu utanríkisráðherra Norðurlandanna varðandi Norðurskautsráðið, og allra ráðherra sem komu þar inn, að neita að taka inn orðið loftslagsbreytingar. Mér finnst það hættumerki. En gott og vel, ráðherra Sjálfstæðisflokksins finnst það ekki. Við erum bara ósammála þarna. Ég tel einmitt að við þurfum að hafa mjög varann á okkur þegar kemur að Bandaríkjamönnum og umræðu um loftslagsmál. Það á að vera eitt helsta verkefni okkar í utanríkispólitíkinni að vera með mun agressífari loftslagsstefnu en verið hefur.
En hvað er það sem við erum síðan að finna núna og fá skilaboð um frá m.a. Sjálfstæðisflokknum á síðustu dögum? Það má bara ekki ræða ákveðin málefni því að ekki er tími til þess. Þetta minnir mann á þann tíma þegar sagt var við okkur hægra fólkið að það væri aldrei rétti tíminn til að lækka skatta. Og nú er allt í einu ekki rétti tíminn til að ræða utanríkismál, alþjóðasamstarf, hvað þá Evrópusambandið. Það má bara ekki ræða það núna af því að ekki er rétti tíminn til að ræða þau mál, m.a. fjölþjóðasamstarf.
Ég ítreka hvatningu mína til hæstv. ráðherra, setjum niður nefnd, starfshóp, sem kortleggur hagsmuni Íslands (Forseti hringir.) í fjölþjóðasamstarfi til lengri tíma. Við það á enginn að vera hræddur, hvað þá utanríkisráðherra.