150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:56]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna í upphafi máls míns að ég er nokkuð gáttaður á svörum og í rauninni málflutningi hæstv. utanríkisráðherra. Ég ætlaði að byrja á jákvæðum nótum en ég ætla þó að fá að nefna að við stöndum frammi fyrir því, ég kem inn á það á eftir, að mannkynið þarf að velta því mjög alvarlega fyrir sér hvernig það ætlar að feta sig inn í framtíðina ef vel er á að fara. Hæstv. ráðherra talaði um í ræðu sinni að við værum stödd í einhverri holtaþoku varðandi utanríkismál. Samt sem áður svarar hann með dylgjum og útúrsnúningum og reynir einhvern veginn í sinni skrýtnu þráhyggju að snúa allri umræðu um það hvort við eigum ekki að tala um hlutina á víðari nótum, hvernig við og önnur ríki fetum okkur áfram sem best, hvort það verður gert með einangrun, tvíhliða samningum eða fjölþjóðlegri samvinnu, þá vinklar hann það alltaf inn á Evrópusambandið. Evrópusambandið skiptir gríðarlega miklu máli og það er hægt að ræða hér í sérstakri umræðu um kosti þess og galla, hvað hefur farið vel og hvað hefur farið verr í þessum veirufaraldri, nákvæmlega eins og hægt væri að ræða um aðgerðir íslensku ríkisstjórnarinnar. En ég kalla bara eftir því eins og hv. þingkona Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerði áðan, að ráðherra þjóðarinnar í utanríkismálum sé aðeins stærri í hugsun en þetta og ég kem örugglega inn á það aðeins á eftir.

En skýrsluna ætla ég líka að ræða svo tíminn hlaupi ekki frá mér áður en það er gert. Það er margt ágætt í henni og margt sem er okkur til sóma. Í fyrsta lagi vil ég nefna að borgaraþjónustan, eins og kemur fram, hefur staðið í ströngu og aðstoðað tugþúsundir Íslendinga sem staddir voru erlendis þegar heimsfaraldurinn braust út. Það er sérstök ástæða til að þakka starfsfólki ráðuneytisins fyrir að hafa brugðist hratt og örugglega og vel við í því, einnig að kortleggja hindranir okkar og aðstoða útflutningsfyrirtæki. Hæstv. ráðherra talaði vissulega um mikilvægi frjálsra viðskipta og verðmæti, en hæstv. ráðherra verður kannski að fara að átta sig á því að verðmæti liggja svo miklu víðar en bara í viðskiptum þótt þau séu nauðsynleg og það er kannski það sem hv. þingkona á undan mér var m.a. að ræða.

Í öðru lagi er sjálfsagt að hrósa Íslandi fyrir þátttöku í mannréttindaráðinu. Þar hefur mannréttindum og jafnréttismálum verið haldið vel á lofti. Við höfum nýtt mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna til að gagnrýna þjóðir og veita aðhald.

Í þriðja lagi er rétt að hrósa ráðuneytinu og ráðherra fyrir framsetninguna á skýrslunni sem verður myndrænni og betri og auðlæsari í hvert skipti þótt kannski mætti fara að víkka sjóndeildarhringinn. Loks ætla ég að hrósa ráðherra og starfsfólki fyrir mjög greinargóða skýrslu og yfirferð yfir mikilvægi EES-samningsins og hvað Evrópusamstarfið er dýrmætt fyrir landið okkar. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að því sé slegið föstu að mikil fjölþjóðleg samvinna milli ríkja sé lykillinn að farsælli þróun hér eins og annars staðar í heiminum. En í þessum síkvika heimi, sem hefur breyst umtalsvert á síðasta mánuði, er einmitt mjög nauðsynlegt að ræða þessi mál í miklu víðara samhengi. Ég held að með ríkri og mikilli alþjóðasamvinnu getum við best tryggt fullveldi okkar.

En þó að ráðherra nefni mikilvægi fjölþjóðlegs samstarfs og fari yfir áskoranir sem eru samfara Covid-veirunni þá finnst mér skorta ákveðna framtíðarsýn. Það eru ýmis úrlausnarefni sem aldrei verða leyst nema í miklu alþjóðlegu samstarfi. Veiran er auðvitað mjög nærtæk í þeirri umræðu, svo ég nefni nú ekki vandamál sem tengd eru fátækt og ójöfnuði í heiminum og loftslagsógninni og einnig áskoranir sem bíða okkar samfara brjálæðislegum breytingum sem eru handan hornsins vegna nýrrar tækni.

Við sjáum það í þessari baráttu núna hvernig ríki geta brugðist við skyndilegri aðsteðjandi ógn með jákvæðum og neikvæðum hætti. Hér dró hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ágætlega upp áðan þá óheillaþróun sem hefur átt sér stað innan einstakra landa í Evrópu, svo ég nefni ekki þann farsa sem er í gangi í Bandaríkjunum núna. Við þurfum virkilega að vera á tánum og ræða þetta. Við erum að fara að mæta bara vegna áhrifa þessarar veiru mjög djúpstæðum vanda, sennilega kannski þeim mesta sem blasir við á heimsmarkaði í 90 ár. Það er alveg sjálfsagt að ræða það hvað gerist þegar ríki mæta svona vandamálum á fyrirvaralausan hátt, hvað gerist þegar þau ákveða að hætta að ganga í takt, jafnvel vinaþjóðir og nágrannaríki, og hvernig við getum í framtíðinni tryggt að það eigi sér ekki stað.

Við þurfum líka að ræða hvaða áhrif svona faraldur hefur almennt á heimsbyggðina. Það er algjörlega viðbúið að hann geti aukið neyð sem er nú þegar til staðar og ýkt í fátækustu ríkjum heimsins. Því er alveg sjálfsagt að hrósa ráðherra fyrir að auka framlag til þróunarsamvinnu og breytt vinnulag við uppgjörsreglu innan málaflokksins. En ég verð þá að endurtaka gagnrýni mína, sem ég hef áður komið á framfæri, að það þýðir ekki fyrir ráðherra að koma í útvarpsviðtöl og segja að Ísland muni ekki láta sitt eftir liggja. Ísland er nefnilega að gera það. Ísland ver miklu minni peningum til þróunarsamvinnu en okkur er sæmandi og miklu minni en önnur nágrannaríki. Þannig að við skulum vera stór einu sinni og reyna að setja okkur markmið um að hífa það framlag upp um leið og færi gefst.

Í skýrslunni er komið aðeins inn á alþjóðasamþykktir sem varða flóttafólk og fólksflutninga. Það er lögð áhersla á sameiginlega ábyrgð og gildandi mannréttindasamninga. Ég veit auðvitað að útlendingalögin eru ekki beint á könnu hæstv. ráðherra en það hlýtur að þurfa að tengja aðeins saman þessi mál sem er verið að ræða hér samtímis í þinginu og þá getur maður ekki annað en gagnrýnt það frumvarp sem kom til 1. umr. í gærkvöldi og er auðvitað mikil afturför í málaflokknum. Ég minni enn og aftur á að formenn flokka undirrituðu árið 2017 yfirlýsingu þess efnis að strax að loknum þeim kosningum ætti að fara í breytingar á útlendingalögum til að bæta réttindi þessa fólks og auka vernd viðkvæmra hópa, kvenna og barna. En nú eru í þrígang þrír mismunandi ráðherrar dómsmála úr Sjálfstæðisflokknum búnir að leggja fram mál sem er bein afturför. Ég hlýt að gagnrýna það og það tengist umræðu um utanríkismál, sérstaklega þegar verið er að draga fram göfug markmið okkar í skýrslunni. Við verðum að hætta þessum leiðangri og snúa inn á betri brautir. Annað er okkur ekki sæmandi.

Ég á lítinn tíma eftir, ég ætlaði að tala meira um varnarmálin og ráðherra kom aðeins inn á þau, en horfandi á það að umfangið á Miðnesheiði er að aukast stórkostlega og það getur verið ástæða fyrir því, hafandi það í huga að einstakir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru að skrifa bænabréf til bæjarstjórna og óska eftir leyfi fyrir (Forseti hringir.) tugmilljarða framkvæmdum við herskipahöfn og annað slíkt. Þá hlýt ég að spyrja ráðherra eftir því hvort það sé ekki eðlilegt að í utanríkismálanefnd fari fram með (Forseti hringir.) þátttöku ráðherra einhver grundvallarumræða um varnarmál á Íslandi og hvort það sé einhver stefnubreyting að eiga sér stað.