150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[13:26]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Það sem ég sé sem stóru myndina í ræðu hv. þingmanns er að alþjóðasamstarf er miklu meira en það sem snýr bara að þeim sem gegnir embætti ráðherra á hverjum tíma. Ég held að það sé eitt af verkefnum okkar, hv. þingmaður fór mjög hratt yfir það, eðlilega, á stuttum ræðutíma, að koma þeim skilaboðum áleiðis hvað er í gangi á vettvangi þar sem þingmenn koma beint að. Því hefur nú verið hrósað hér að í skýrslunni eru hlutirnir settir meira fram með myndrænum hætti. Það hefur verið markmið, það er engin tilviljun því að við erum að reyna að koma því áleiðis hvað er að gerast með eins einföldum hætti og hægt er því að fólk hefur ýmislegt annað að gera en að lesa langar skýrslur. Ég held að það ætti líka að vera sérstakt verkefni, hvort sem það er samvinnuverkefni ráðuneytisins eða þingsins, að koma því betur áleiðis hvað hv. þingmenn eru að gera í sínu mikilvæga alþjóðasamstarfi því það skiptir mjög miklu máli. Ég er sammála hv. þingmanni í því, sérstaklega því sem hann sagði um norðurslóðamálin. Það gengur vel, sem betur fer, og það er mikilvægt er að fólk sé meðvitað um hvað við erum að gera og af hverju þetta skiptir máli.

Hv. þingmaður henti inn í lokin hugmynd um fimmta skóla GRÓ, nú heitir þetta GRÓ eftir að við gerðum samning við UNESCO. Það er áhugaverð hugmynd. Önnur hugmynd sem ég hef heyrt og finnst líka vera áhugaverð er að við verðum með sérstakan skóla um forvarnir vegna þess að hugmyndafræðin á bak við skólana er að við miðlum því áfram sem okkur hefur gengið vel í. Ég tek fagnandi góðum hugmyndum en ég held að það sem hér kom fram í ræðu hv. þingmanns sé að það er sérstakt markmið að koma þeim skilaboðum áleiðis, ekki bara til þings heldur líka þjóðar.