150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[13:28]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og tek undir þetta með utanríkismálin yfir höfuð, þau faðma náttúrlega gríðarlega vítt svið og alþjóðasamvinna er á ótal stigum og af ótal stærðum ef við orðum það þannig. En ég tek um leið undir það sem aðrir þingmenn hafa sumir sagt hér á undan að það er sérstakt þegar utanríkismál eru rædd á Alþingi, á almennum vettvangi eins og hér er, þá taka þingmenn almennt ekki þátt í því. Það er til umhugsunar og mér finnst að þarna þurfi að gera bragarbót á.

Varðandi tillöguna sem ég lagði fram um fimmta skólann, nýsköpun í matvælaiðnaði og fæðubótar- og líftækniiðnaði, þá höfum við gert þetta mjög sjávartengt og landbúnaðartengt og myndi sennilega henta mjög mörgum þróunarþjóðum. Hitt með forvarnirnar styð ég innilega. Það gæti þá verið sjötti skólinn fyrir mér, það er gaman að það skuli vera orðin til regnhlíf hér sem við köllum GRÓ utan um þetta. Það er búið að flytja þetta til UNESCO, eins og menn vita. Ég nefndi einmitt að forvarnir skiptu verulegu máli og Ísland hefur hvað ungdóminn varðar náð alveg einstökum árangri undir forystu ákveðins prófessors, Ingu Dóru Sigfúsdóttur við Háskólann í Reykjavík. Þetta var orðið alþjóðlegt verkefni, m.a. á norðurslóðum, Planet Youth hét það sums staðar, og ég styð það eindregið. Það eru fleiri málefni sem væri gaman að ræða hér eins og málefni hafsins, en við sjáum til með það.