150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[13:30]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Hv. þingmaður vísar til þess að það eru kannski ekki margir þingmenn sem taka þátt en ég held líka að við ættum að hugsa það þannig, og höfum svo sem gert það, að taka sérstaka umræðu um skýrsluna um mannréttindaráðið og sömuleiðis varðandi EES-málin. Þetta er svo víðfeðmt að við ættum hér í þinginu að gera meira af því að taka ákveðna þætti fyrir og gefa okkur bara þann tíma sem þarf af ástæðum sem ég held að ég þurfi ekki að rökstyðja neitt frekar.

Hv. þingmaður nefndi sérstaklega GRÓ-skólana, þeir eru náttúrlega stórir skólar á íslenskan mælikvarða en mjög fáir vita af þeim. Ég vona að það muni breytast og það er upplifun, fannst mér, að koma þar. Ég hef haft það fyrir reglu að reyna að fara alla vega einu sinni á ári og skoða þróunarverkefnin okkar, af ástæðu sem mér finnst vera augljós, og ég vona að þeir sem á eftir mér koma hafi það sem reglu líka, og hitta þá sem hafa verið útskrifaðir úr þessum skólum til að heyra hvernig námið hefur nýst þeim og hvað þeim hefur fundist um það. Það eru mjög ánægjulegir fundir og það þarf að hafa mjög mikið fyrir því að draga upp úr þeim hverjir gallarnir eru og hvað megi betur fara, en ég hef reynt það samt vegna þess að við höfum ekki náð fullkomnun í þessu, ekki frekar en neinu öðru. En mér finnst þetta vera skynsamleg leið, að þar sem við höfum náð árangri þá miðlum við því til annarra.

Varðandi forvarnamálin, af því að hv. þingmaður nefndi þau, þá tengjast þau norðurskautsmálunum og þetta eru oft á tíðum okkar næstu nágrannar. Við höfum, tel ég, í gegnum þetta samstarf og annað eflt tengslin. En betur má ef duga skal. Við getum auðvitað lært mjög mikið af þessu fólki en sömuleiðis hefur sumt gengið vel hjá okkur sem þeir eru að eiga við núna og við eigum að vera mjög einbeitt (Forseti hringir.) í því að miðla upplýsingum og styrkja samstarfið, ekki bara meðal þingmanna og stjórnmálamanna heldur líka meðal almennings.