utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég tek undir orð hæstv. ráðherra varðandi skólana. Það eru 1.400 sérfræðingar sem hafa farið í gegnum þessa fjóra skóla Sameinuðu þjóðanna og við getum ímyndað okkur ölduhreyfingarnar út frá því fólki í heimalöndum þess.
Ég minntist aðeins á málefni hafsins. Það er alþjóðasamningur í undirbúningi um vernd og nýtingu hafsins, líffræðilegrar fjölbreytni, úthafinu, svokallaður BBNJ-samningur sem mun reynast mikið framfaraspor. Það er mjög mikilvægt að fólk muni eftir því að við erum þar að taka þátt. Annað sem ég nefndi ekki var netöryggi sem er ný ógn þar sem við þurfum að vanda okkur mjög mikið.
En hvað um það. Það er svo komið að utanríkisþjónustan okkar er að halda upp á sína áttugustu ártíð núna. Hún þarf að vera öflug, við vitum það. Hún þarf að vera skilvirk og við vitum það líka. Þannig að það er ástæða til að muna eftir því hér úr ræðustól í lok þessarar umræðu okkar hæstv. utanríkisráðherra að hrósa um leið þjónustunni fyrir hennar vinnu í Covid-faraldrinum. Það hefur komið fram hjá öðrum þingmönnum og ég tek undir það.