utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég ítreka það sem ég var að tala um varðandi netöryggismálin og ég tek undir það að samstarf Norðurlandanna er svolítið lykilatriði þarna. Ég fylgdist með því í gegnum fjármálaáætlanir og það góða fyrirkomulag sem við erum með þar að við höfum verið í ákveðinni greiningarvinnu og fyrir einu eða tveimur árum minnir mig að við höfum verið að horfa til Boston og tækis sem hefur verið þróað þar hjá háskólanum. Svo eru netöryggismál rædd í öllu okkar alþjóðasamstarfi, hvort sem það er innan ÖSE eða NATO og örugglega, hjá Evrópuráðinu og hjá fleirum, en það er svolítið viðkvæmt þegar kemur að fjölþjóðasamstarfi að ræða netöryggismál. Ég held því að Norðurlöndin ættu einmitt að vera býsna góður samstarfsaðili fyrir okkur þegar að þessu kemur. Auðvitað eigum við að taka þátt í umræðunni á öllum vettvangi. En þegar kemur að minni þjóðum hér í Norður-Atlantshafi þá eigum við, að ég tel, sérstaklega í þessu og reyndar mörgu öðru, að halla okkur að Norðurlöndunum og þá er gott að sjá hve öflugt og gott samstarf er á milli Norðurlandanna almennt.
Ég náði nú ekkert að ræða ástandið sem við lifum í núna, Covid-ástandið, en ég vona svo innilega að við förum fljótlega að geta opnað okkar landamæri og þá væri kannski fyrsta skrefið einmitt Norðurlöndin. En ég held að þarna séu vissulega tækifæri og við þurfum að hreyfa okkur hraðar. Ég hef líka sagt það um netöryggismálin að ég hef haft ákveðnar áhyggjur af því hvað þau mál dreifast víða í stjórnkerfinu okkar og við vitum að það er alltaf ákveðið vandamál að ná samþættingu. Þetta er að sjálfsögðu að einhverju leyti utanríkismál, þetta er auðvitað fyrst og fremst þjóðaröryggismál, það fellur undir samgönguráðherra sem fjarskiptaráðherra en er líka tengt löggæslunni og þar af leiðandi dómsmálaráðherra. Eflaust væri hægt að telja upp fleira því að fjarskiptin komi einhvern veginn inn á allar hliðar samfélags okkar í dag.