150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[13:52]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hæstv. ráðherra. Ég bíð mjög spennt eftir Bjarnason-skýrslunni. Ég efast ekki um að þar verði að finna mikinn fróðleik og áhugaverða lesningu. En hæstv. ráðherra kom einmitt inn á eitt lykilatriði og það er að við erum herlaus þjóð. Nú ætla ég ekki að tala fyrir her á Íslandi, ég hef ekki gert það, en þar sjáum við einmitt svo mikinn mun á okkur og öðrum löndum varðandi þessi öryggismál. Það vill nú svo til að ég á bróður sem býr í Noregi og hefur starfað lengi hjá norska hernum í upplýsinga- og netöryggismálum og hann hefur haldið nokkra fyrirlestra yfir mér í þessum málum. En vegna þess að þessar þjóðir hafa her, þá hafa þær allt aðrar rannsóknarheimildir. Það er allt annað sem her getur gert heldur en, með fullri virðingu fyrir því, við skrifborð hjá lögreglunni okkar eða ríkislögreglustjóra. Þar komum við inn á lykilþætti, þetta er það sem varnarmál snúast að stærstum hluta orðið um í dag, þ.e. netöryggi. Það er vegna þess að allt er tengt fjarskiptum.

Ég bíð spennt eftir þessari skýrslu og veit að við munum fara dýpra og betur í umræðu um þessa þætti en ítreka það sem ég sagði hérna áðan: Við þurfum að hafa hraðar hendur því þetta er allt að gerast á ljóshraða.

En vegna þess að ég náði ekki að fara yfir allt hérna er ég með einn punkt sem ég náði ekki að nefna og lýtur að allt öðru og ég ætla að leyfa mér að fleygja honum hér fram. Hér var verið að ræða mögulega nýjar útgáfur af skólum í þróunarsamvinnu okkar. Það er hugmynd sem ég hef ekki komið í verk að gera neitt með enn þá og hafði hugsað mér að nota þetta ár í, árið 2020, sem er ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Við gætum örugglega gert mikið í þróunarstarfi okkar með því að nýta þessar frábæru fagstéttir og þá miklu fagþekkingu sem felst í ljósmæðrafræðum og hjúkrun hér á landi, til að mynda í Afríku. Við höfum náð alveg ofboðslega miklum árangri og þetta væri kannski tækifæri okkar til að skila meiru til samfélagsins sérstaklega á þessu málefnasviði.