utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu um þessa skýrslu sem er að mörgu leyti ágæt og ég vil þakka fyrir hana og þakka starfsmönnum ráðuneytisins sem unnu við skýrslugerðina, hún er ágæt og vel fram sett, auðveld til lestrar sem skiptir máli. Ég vil einnig nota tækifærið eins og margir aðrir þingmenn og þakka borgaraþjónustunni og bara öllum starfsmönnum ráðuneytisins sem voru í borgaraþjónustunni í tengslum við veirufaraldurinn. Ég hef aðeins spjallað við hæstv. utanríkisráðherra um þetta og ég þekki fólk sem var í erfiðum aðstæðum erlendis sem leitaði til þjónustunnar og bar mikið lof á hana. Fyrir það ber að þakka sérstaklega og ánægjulegt hversu vel til tókst hjá okkur við þessar erfiðu aðstæður sem vissulega eru einstakar. Það sýnir að við höfum yfir frábæru starfsfólki að ráða í utanríkisþjónustunni sem lagði sig fram nótt sem nýtan dag í því að aðstoða íslenska ríkisborgara á erlendri grundu.
Ég vil í upphafi staldra svolítið við forystuhlutverk okkar í mannréttindamálum. Þó svo að Ísland hafi gerst aðili að flestum þeim alþjóðastofnunum sem settar voru á fót í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar gerðist Ísland ólíkt hinum Norðurlöndunum ekki virkur þátttakandi innan þeirra. Þess vegna var þetta óvænta tækifæri til að setjast í mannréttindaráðið kærkomið og ég er þeirrar skoðunar að við eigum að sækjast eftir setu þar í framhaldi þegar röðin kemur að okkur og þá í samstarfi við Norðurlöndin og nýta þá góðu reynslu sem við höfum í þeim efnum. Ég er sammála því sem hefur komið fram og tel mikilvægt að Ísland sé ávallt rödd á alþjóðavettvangi og rödd skynsemi og að við stöndum vörð um mannréttindi. Við eigum þarna ýmis vannýtt tækifæri sem ég hef áður minnst á hér og sérstaklega í friðarmálum að mínum dómi. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur t.d. sagt að við eigum mikil tækifæri og það er litið upp til okkar og það er mjög jákvætt og eitthvað sem við eigum að nýta okkur.
Núna þegar setu okkar í ráðinu er lokið þá eigum við að mínum dómi að halda áfram og vera þessi rödd á alþjóðavettvangi. Við eigum ekki að setjast í helgan stein þó að við séum ekki lengur í ráðinu. Þar vil ég nefna sérstaklega að við þurfum að halda því á lofti að samstarfslönd okkar, t.d. þegar kemur að þróunarsamvinnunni, þurfa að taka sig á í málefnum hinsegin fólks. Það er eitthvað sem við eigum að halda á lofti. Það er mikilvægt í mínum huga vegna þess að sum af þessum samstarfslöndum okkar hafa því miður bara slæmt orð á sér hvað það varðar, framkomu gagnvart samkynhneigðum.
Ég vil auk þess koma aðeins inn á mál sem mér er svolítið hugleikið. Það lýtur að því að við hugsum líka um söguna þegar kemur að mannréttindamálum og hvað hún hefur verið þyrnum stráð víða og sérstaklega í Evrópu. Á þessu ári eru 75 ár frá lokum helfararinnar og miðað er við 27. janúar 1945 þegar sovéskar hersveitir frelsuðu fanga í Auschwitz-Birkenau útrýmingarbúðunum í Póllandi. Ég held að það hefði átt að minnast á það í skýrslunni að fyrir þinginu liggur þingsályktunartillaga frá hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur, varaformanni utanríkismálanefndar, um að við Íslendingar minnumst sérstaklega helfararinnar. Það er ótrúlegt að við erum eina ríkið af 57 ríkjum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu þar sem helfararinnar er ekki minnst. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, sagði í ávarpi í tilefni af alþjóðlegum kynningardegi um fórnarlömb helfararinnar að það sé hættuleg villa að halda því fram að helförin hafi einfaldlega verið til komin vegna einhvers konar geðbilunar glæpahóps nasista. Þvert á móti væri helförin hátindur þess sem nú er kallað gyðingahatur, árþúsunda gamalt hatur á gyðingum og þeir gerðir að blóraböggli. Gyðingahatur er þrálátt og hefur tekið á sig nýjar myndir og finnur nýjan farveg í þessari nýju tækni og þetta er alltaf sama gamla hatrið. Við megum aldrei sofa á verðinum. Undanfarið höfum við horft á auknar árásir á gyðinga og samfélög gyðinga og gyðingahatur bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og þetta er mikið áhyggjuefni. Ég segi fyrir mitt leyti að við verðum aðeins að taka okkur á í þessu og minnast helfararinnar og ég vil hvetja hæstv. utanríkisráðherra og skora á hann að beita sér sérstaklega fyrir því að þessi tillaga verði samþykkt og við höldum í heiðri þennan alþjóðlega minningardag á Íslandi.
Ég vil auk þess aðeins koma inn á mál sem mér finnst að við ættum að tala fyrir á alþjóðavettvangi í framhaldi af því að við erum ekki lengur í mannréttindaráðinu. Það eru ofsóknir gegn kristnum. Við eigum að vera rödd sem heyrist á alþjóðavettvangi í þessum efnum og í fararbroddi að mínu áliti. Gleymum því ekki að barátta fyrir mannréttindum er einnig barátta fyrir trúfrelsi. Við Íslendingar erum þjóð með 1000 ára farsæla sögu kristni í landinu og því miður hafa fáir staðið vörð um mannréttindi kristinna hópa í löndum þar sem slíkar ofsóknir hafa átt sér stað. Og það er nú bara þannig, herra forseti, að kristnir er sá trúarhópur í heiminum sem verður mest fyrir barðinu á ofsóknum. Það er talið að um 245 milljónir kristinna manna sæti ofsóknum vegna trúar sinnar og ríflega 4.000 létu lífið á síðasta ári af þeim sökum og bara í Norður-Kóreu voru um 70.000 manns í þrælkunarbúðum vegna kristinnar trúar. Fyrir ári síðan, á páskum, var gerð mikil hryðjuverkaárás á Sri Lanka, ein stærsta hryðjuverkaárás í heiminum síðan árásin á tvíburaturnana í New York var gerð, og hún beindist að kristnum. Þar var öfgahópur íslamista sem myrti 250 kirkju- og hótelgesti að morgni páskadags. Eftir þessi voðaverk þá hafa sjónir manna beinst aðeins að þessum alvarlega hlut og samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna falla hundruð kristinna í hverjum mánuði vegna margvíslegra ofsókna.
Bretar hafa sýnt frumkvæði í því að tala gegn ofsóknum gegn kristnum og ber að fagna því. Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, gerði ofsóknir gegn kristnum að umtalsefni í jólaávarpi sínu. Síðan var það á síðasta ári sem breska utanríkisráðuneytið gaf út mjög vandaða skýrslu um ofsóknir gegn kristnum. Niðurstaðan í þeirri skýrslu er sláandi en þar kemur fram að sannanir séu fyrir því að ofsóknir á hendur kristnu fólki séu verri en nokkur sinni áður. Breski utanríkisráðherrann hefur sagt að hann muni nota áhrif Breta á alþjóðavettvangi til að vernda kristið fólk sem sætir árásum vegna trúar sinnar. Ég vil hvetja hæstv. utanríkisráðherra til þess að taka þennan málaflokk að sér. Við erum lítil þjóð á alþjóðavettvangi en við getum hins vegar haft kröftuga rödd og til okkar er horft, m.a. hefur framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagt það. Þess vegna er mikilvægt í mínum huga að nýta þetta tækifæri til að halda áfram á þessari braut sem við höfum markað okkur með setu okkar í mannréttindaráðinu með jákvæðum hætti, þ.e. að gagnrýna það sem fáir hafa því miður vilja taka að sér og þar nefni ég sérstaklega kristnina. Ég vona að utanríkisráðherra (Forseti hringir.) og ríkisstjórnin geri þetta að sínu og við getum verið stolt af þeim málflutningi.