utanríkis- og alþjóðamál.
Án þess að ég ætla að lengja þetta mjög mikið þá er ég aftur sammála hv. þingmanni. En bara svo það sé sagt, þó að við séum ekki lengur með setu í mannréttindaráðinu þá getum við enn þá ávarpað það og tekið þátt í starfi þess, eins og við höfum gert. Ég var fyrsti utanríkisráðherrann sem gerði það. Eins og hefur verið rakið var málflutningurinn með þeim hætti að það hjálpaði til þegar Bandaríkjamenn gengu út, þá litu menn til okkar. Þannig að við munum áfram láta að okkur kveða þar. En það er ekki bara þar, af því að hv. þingmaður vísaði til fleiri þátta, við erum komin með mannréttindamiðaða þróunarsamvinnustefnu. Það er gegnumgangandi í okkar þróunarsamvinnuverkefnum að leggja áherslu á mannréttindamálin, m.a. út af ástæðum sem hv. þingmaður nefndi en því miður, þrátt fyrir að ræða hv. þingmanns hafi verið yfirgripsmikil og góð, þá er ástand mannréttindamála þannig í heiminum að hún var ekki tæmandi, því miður.