utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir að koma upp í andsvar. Maður veltir fyrir sér þessum fjölbreyttu og stóru verkefnum og það er á mörgum stöðum sem við þurfum að vaxa eða gæta betur að hagsmunum okkar. Hafréttarmálin sem ég nefndi í minni ræðu og hæstv. ráðherra kom inn á eru einn hluti af því. Þeim tengjast að sjálfsögðu öll umhverfismálin og loftslagsmálin. Við höfum séð greiningar og spár um það hvað gerist ef ákveðnir hlutir gerast í hafinu, það súrnar meira, hitnar meira o.s.frv., og við þurfum þess vegna að taka þátt í öllum verkefnum sem við getum til að sporna gegn því.
Mig langar líka að nefna í sambandi við alþjóðastofnanir þar sem við tökum þátt, mig langar bara að hafa sagt það hér, að með því fólki sem er að gæta okkar hagsmuna, hvort sem það er í Strassborg, frá París held ég að það sé í dag, í Vínarborg eða New York eða hvar sem er, með þessa litlu þjónustu, náum við að skanna það helsta og mikilvægasta. En við gætum vitanlega gert betur og það vita allir. Á sama tíma þurfum við vitanlega, og ég veit að hæstv. ráðherra vill gera það, að reyna að forgangsraða þeim litlu fjármunum sem við höfum í þessi verkefni. Það skiptir vissulega miklu máli að við tryggjum, og eyðum þá púðri og peningum í það, viðskipti til og frá landinu. Áskoranirnar sem hafa verið undanfarið varðandi t.d. Brexit og þennan faraldur sem nú geisar hafa eðlilega verið miklar. En með fjölbreyttri og sterkri þjónustu getum við ráðið við þetta allt, að sjálfsögðu. Það er hins vegar spennandi að velta því fyrir sér hvernig spár munu þróast til lengri tíma litið. Hver verður framtíðin eftir að þessi faraldur er genginn yfir? Ég held að hann breyti töluvert mikið heimsmyndinni og breyti líka utanríkisþjónustunni til lengri tíma, í það minnsta gæti þurft (Forseti hringir.) að endurmeta verkefnin út frá þessum faraldri.