150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[14:47]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég biðst afsökunar ef orð mín hafa kannski misskilist þannig að ég hafi verið að gera lítið úr setu okkar og starfi okkar á sviði mannréttindamála síðustu ár, alls ekki. Það sem ég átti kannski frekar við var að seta okkar í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna hafi kannski dottið í fang okkar þannig að við gátum ekki undirbúið okkur nægjanlega, en að því sögðu þá stóðum okkur gríðarlega vel miðað við þann stutta tíma sem við fengum í undirbúning fyrir setu í ráðinu. Það hefðu ekki öll ríki hreinlega ráðið við þann stutta undirbúningstíma sem við fengum til þessarar mikilvægu setu. En við sýndum það og sönnuðum að við vorum verkefninu vaxin og allri þeirri ábyrgð sem þessari setu fylgdi.

Kannski verð ég líka að skýra hvað ég átti við þegar ég var að tala um jafnréttismálin. Það er þessi ósk mín um að við uppfærum okkur svolítið hressilega þegar kemur að jafnréttismálunum á alþjóðavísu, að við förum að hugsa upp á nýtt hvernig við getum markað okkur skýrari stefnu vegna þess að akkúrat áherslurnar í jafnréttismálum hafa vakið mikla athygli á alþjóðavísu. Það er tekið eftir því og er litið til okkar þegar kemur að alþjóðamálum og það er yfirleitt talað um Ísland sem fyrirmynd að öllu leyti þegar kemur að jafnréttismálum. Það gefur okkur líka tækifæri til að þróa okkur og vaxa og dafna þegar kemur að því og koma með róttækari og djarfari lausnir í þeim málum.

Aðeins varðandi loftslagsmálin. Ég vil líka benda á orð Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem hefur lýst því yfir að loftslagsbreytingar eru orðin ein helsta ógn við mannréttindi í heiminu. Hún hefur bent á það að um 40% borgarastyrjalda í heiminum síðustu 60 árin megi rekja til hnignunar umhverfis og áhrifa breytinga á loftslagið. Þegar við ætlum að stíga niður fastari fæti í mannréttindamálum og nýta okkur þá reynslu sem við höfum sannarlega fengið, mjög hratt, mjög góða reynslu, þá verðum við að horfa til loftslagsbreytinga og skapa okkur skýrari stefnu á alþjóðavettvangi þegar kemur að loftslagsmálum. Tillögur um þá stefnu má sjá í þingsályktunartillögu um græna utanríkisstefnu sem ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra hefur lesið og hvet hann til að kynna sér þá þingsályktunartillögu vel.