utanríkis- og alþjóðamál.
Ég lýsi yfir ánægju minni með þessa upptalningu hæstv. utanríkisráðherra á þeim verkefnum sem hann tók til og ég held að hann hafi ekki einu sinni náð að taka þau öll til vegna þess að hér í kafla um loftslagsmál á bls. 42 er einmitt talað um samstarf utanríkisráðuneytisins og forsætisráðuneytisins um loftslagsmál sem hefur verið aukið. Framlag Íslands í græna loftslagssjóðinn, Green Climate Fund, hefur verið aukið núna fyrir næstu árin og sömuleiðis, eins og hæstv. ráðherra fjallaði um, hefur utanríkisráðuneytið líka áætlað að verja 276 millj. kr. til þróunarríkja vegna Covid-19 sem skiptast niður eins og sjá má í skýrslunni. Það er vel og mjög gott viðbragð.
Svo vil ég bæta við orð hæstv. ráðherra því að á bls. 103–105 er líka umfjöllun um svokölluð þverlæg málefni þróunarsamvinnu þar sem talað er um umhverfis- og loftslagsmál, jafnréttismál og mannréttindamál og áhrif Covid á stöðu kvenna, m.a. stöðu þeirra í framlínu heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er vel. Þetta er akkúrat dæmi um skarpar og skýrar aðgerðir sem eru viðbragð við þeim verkefnum sem við erum að glíma við núna á alþjóðavísu. Ég er í raun og veru að hvetja hæstv. ráðherra til að stíga enn fastar til jarðar í þessu, að Ísland láti að sér kveða þegar kemur að grænu málunum, umhverfismálum og loftslagsmálum á alþjóðavettvangi og sömuleiðis að við gerum jafnréttismálin skýrari og skarpari og kannski uppfærum þau reglulega til þess að við höldum forystu okkar á alþjóðavísu þegar kemur að jafnréttismálum og áherslu á jafnrétti kynjanna.