150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[15:13]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Mér skilst að það hafi orðið einhver mistök varðandi ræðutímann um þessa skýrslu þannig að ég óska eftir því, ef ég tel þörf á því, að vera skráð aftur í ræðu á eftir, en við sjáum til hvernig mér gengur að fara yfir efnið. Ég vil einnig styðja þá tillögu sem fram hefur komið hér að í framtíðinni verði tvöfaldur ræðutími um skýrslu utanríkisráðherra, ég held að það dugi ekkert minna, eða að hafa þessa umræðu oftar á dagskrá yfir árið þegar við gerum nýja starfsáætlun fyrir þingið. Þetta er alla vega allt of knappur tími. En þrátt fyrir svona netta skammarræðu í byrjun vil ég þakka hæstv. ráðherra og hans starfsfólki fyrir mjög góða og ítarlega skýrslu að venju. Það er af mörgu að taka en þó er þessi skýrsla frábrugðin venjubundnum skýrslum þar sem heimurinn glímir nú við faraldur af völdum Covid, sem hefur ekki farið fram hjá neinum. Segja má að faraldurinn hafi sett samfélög um allan heim á hliðina. Samgöngur hafa lamast og atvinnulífið að stórum hluta og við blasir alvarlegt atvinnuleysi um allan heim. Við þekkjum ekki enn til fulls hverjar afleiðingar þessa faraldurs verða en við getum þó gert ráð fyrir að efnahagslegar afleiðingar hans verði verulega neikvæðar um allan heim. Það er þó of snemmt að spá nokkru um framhaldið en það sem við getum rætt og eigum að ræða er annars vegar að skoða viðbrögðin við Covid og hvað við getum lært af þeim og hins vegar hvernig við getum nýtt þessa reynslu til að byggja upp til framtíðar í nánu samstarfi við nágrannaríki og aðrar vinveittar þjóðir og ekki síst alþjóðlegar stofnanir eins og margir hafa nefnt í dag.

Herra forseti. Fram kemur í skýrslu ráðherra að glundroða hafi gætt í alþjóðlegu samstarfi þegar veiran lét á sér kræla utan Asíu og ekki síst innan Schengen. Landamæri lokuðu fyrirvaralaust, má segja, og einnig á milli Norðurlanda án þess að nokkurt samtal eða samráð hefði átt sér stað, alla vega í sumum tilfellum. Eftir á að hyggja hefði mátt framkvæma hlutina á annan hátt og ég efast ekki um að menn muni læra af þessari reynslu. Í öllu óðagotinu og óvissunni stóð borgaraþjónusta utanríkisþjónustu Íslands vaktina um heim allan. Ég hélt ég væri frumleg þegar ég var að skrifa þessa ræðu en það hafa sem betur fer allir komið inn á þetta atriði og hrósað starfsfólki utanríkisþjónustunnar sem vann afrek, má ég segja, sat við símann og tölvuna dag og nótt og þjónustaði Íslendinga um allan heim. Þó að við séum fámenn, Íslendingar, fámenn þjóð, þá tekst okkur einhvern veginn að vera alltaf úti um allt við leik og störf og það reyndi allverulega á utanríkisþjónustuna en hún stóðst prófið. Ég vil þakka henni enn og aftur, hún á heiður skilinn og starfsfólk hennar fyrir sitt framlag.

Herra forseti. Ég verð einnig að koma því hér að ég var mjög ánægð að sjá þá samstöðu sem norrænu ríkin hafa sýnt á þessum tíma, þó svo að ég sé búin að gagnrýna hér aðeins landamæralokanirnar, en mörg önnur verkefni hafa verið á borðinu og þá ekki síst það sem ég nefndi áðan, samstarf varðandi borgaraþjónustuna, að koma norrænum borgurum til síns heima, en einnig varðandi samstöðu og áherslur þeirra á að standa þurfi vörð um mannréttindi og lýðræði sem á undir högg að sækja á tímum kórónuveirunnar. Einnig þau skilaboð að norræn ríki telji mikilvægt að styðja fátækustu ríkin í samstarfi við alþjóðastofnanir og mannúðarsamtök. Það er afar mikilvægt atriði og í skýrslu ráðherra er þessa áherslu á mannréttindi, lýðræði og samstarf við alþjóðastofnanir víða að sjá. Ég ætla kannski ekki að fara ítarlega ofan í kaflann um þróunarsamvinnuverkefnin í framhaldinu, en umfjöllun um þau er að finna á bls. 87 og áfram. Þar er gerð mjög góð grein fyrir því þróunarsamstarfi sem við Íslendingar tökum þátt í, bæði samstarf við fjölþjóðlegar stofnanir og eins tvíhliða samstarf. Það má bæði sjá og heyra að hæstv. ráðherra leggur mikla áherslu á þennan málaflokk og ríkisstjórnin hefur verið að bæta í fjármunum og auka áherslu almennt á það sem er vel.

En aftur að norrænni samvinnu. Norrænir ráðherrar hafa fundað bæði formlega og óformlega síðustu vikur, deilt upplýsingum og rætt þær leiðir sem ríkin gætu mögulega farið til að bregðast við Covid-19. Það gleður mig að sjá og heyra hversu mikið vægi norrænt samstarf hefur haft þegar á reynir. Það er greinilega ekki bara í orði heldur líka á borði. Það er gerð mjög góð grein fyrir þessu á mjög mörgum stöðum í skýrslunni hvernig við norrænar þjóðir höfum nálgast þetta flókna verkefni. Á vef norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs — ég vil kannski nota tækifærið og auglýsa þá síðu, norden.org — má einnig sjá ýmsar fréttir þess efnis, m.a. er þar frétt um að norrænir ráðherrar vilji tryggja samlegð milli efnahagslegrar endurreisnar og grænna umskipta í ljósi Covid — þarna er tækifæri — og að norrænu samstarfsráðherrarnir hafi ákveðið að ríkin sameinist um rannsóknir og aðrar markvissar aðgerðir til að hjálpa svæðinu að komast út úr þeim erfiðu aðstæðum sem Covid hefur leitt af sér og að atvinnuvegaráðherrar Norðurlandanna séu nú að undirbúa uppbyggingarstefnu eftir kórónukreppuna, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er allt af hinu góða. Norðurlandaráð hefur ekki látið sitt eftir liggja við að hvetja ráðherra til náins samstarfs, bæði á meðan Covid stendur og einnig að faraldrinum loknum.

Þann 20. apríl sl. sendi forsætisnefnd Norðurlandaráðs bréf til allra forsætisráðherra Norðurlanda. Í bréfinu vísar forsætisnefndin til stefnu um samfélagsöryggi sem samþykkt var einróma á Norðurlandaráðsþingi í október árið 2019. Forsætisnefndin hvetur ríkisstjórnir Norðurlanda til að innleiða þær tillögur sem lagðar eru fram í stefnunni og nefnir sérstaklega tillögu um að ríkisstjórnir Norðurlanda samræmi aðgerðir til að tryggja framboð á mikilvægum lyfjum, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson kom einmitt inn á það hér rétt áðan, og öðrum búnaði til lækninga. Í bréfinu undirstrikar forsætisnefndin þörfina á uppfærðri norrænni áhættugreiningu og viðbúnaðaráætlun og leggur til að komið sé á fót óháðri norrænni viðbúnaðarnefnd. Ég tel mjög mikilvægt að þessum nefndum verkefnum verði flýtt eins og mögulegt er og mér þætti vænt um að heyra frá hæstv. ráðherra hvaða sýn hann hefur á þessa stefnu varðandi nánara samstarf sem útfært yrði út frá þessum meginatriðum sem koma fram í bréfinu frá forsætisnefnd Norðurlandaráðs.

Það er stefna Norðurlandanna að verða samþættasta svæði heims. Við eigum í mjög nánu sambandi og milli okkar ríkir traust sem er einstakt á heimsvísu. Það er því mikilvægt að ríkisstjórnir vinni saman að því að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra ferðatakmarkana sem gripið hefur verið til og skoði hvort hægt sé að samræma viðbrögð við faröldrum í framtíðinni með þeim hætti að ekki þurfi að grípa til nýrra landamærahindrana.

Herra forseti. Mér þykir einnig mjög mikilvægt að koma því að hér í þessari umræðu í dag að nefndir Norðurlandaráðs hafa fundað mjög reglulega síðustu vikur þrátt fyrir ferðabann. Skrifstofa Norðurlandaráðs og starfsmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs hafa staðið sig með miklum sóma við að leita lausna svo starfið geti haldið áfram nánast óslitið þrátt fyrir breytt fundaform. Við höfum notast við fjarfundabúnað með innbyggðum túlkunarmöguleikum og einnig afgreitt mál skriflega eins og kostur er. Auðvitað var leiðinlegt að geta ekki haldið vorþing Norðurlandaráðs í Helsinki í lok mars eins og til stóð en málin voru samt sem áður afgreidd eins og kostur var, bæði á fjarfundum og skriflega og þeim frestað sem mögulegt var að fresta til haustsins. En við stefnum enn á að halda haustþing Norðurlandaráðs í lok október í Reykjavík eða þar til annað kemur í ljós. Þessi reynsla hefur kennt okkur það að möguleikar á fjarfundaformi eru meiri en margir bjuggust við, sérstaklega með tilliti til alþjóðasamstarfs og túlkunar. Ég mun því leggja áherslu á það í forsetatíð minni í Norðurlandaráði að hefðbundnum fundum ráðsins og nefndum verði fækkað. Þannig væri hægt að gera starfið enn skilvirkara, spara umtalsverða fjármuni vegna ferðakostnaðar og fundahalda sem og að fækka kolefnissporum og draga þar með verulega úr umhverfisáhrifum vegna ferðalaga. Ég sé í skýrslu ráðherra að utanríkis- og varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins hafa í fyrsta sinn fundað með fjarfundabúnaði. (Forseti hringir.)

Herra forseti. Ég er alls ekki búin að ljúka máli mínu og óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.