utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra, sem vill líka kalla sig þróunarsamvinnuráðherra, fyrir þessa skýrslu sem liggur fyrir þinginu og hefur fengið hérna langa umræðu, ég ætla ekki að segja að hún hafi verið langdregin, hún var löng og margt í mörgu, eins og sagt er. Ég ætla ekki að hafa langa tölu um þetta, skýrslan er yfirgripsmikil og veitir ágætisyfirlit yfir alla þá starfsemi sem fram fer í utanríkisþjónustunni og er sett fram á skýran og skilmerkilegan hátt. Hún þjónar margvíslegum tilgangi og gott fyrir bæði þingmenn og almenning að geta flett upp í skýrslunni. Að vísu er ekki fjallað um EES-málin af því að það var gefin út sérstök skýrsla um þau en að öðru leyti er þetta ágætisyfirlit. Utanríkismál Íslands eru, eins og sjá má af þessari skýrslu, margvísleg og af ýmsum toga og þjóna sjálfsögðu langflest þeirra því eina markmiði og ætti auðvitað að vera helsta markmiðið að gæta hagsmuna Íslands á erlendri grundu en einnig eru þarna önnur verkefni sem þjóna hagsmunum Íslands með óbeinum hætti, ekki eins beinum og menn kannski þekkja helst. Þar nefni ég að sjálfsögðu þróunarsamvinnuna sem þjónar hagsmunum alls heimsins að við leggjum öll lið í þeim efnum.
Mér er hins vegar efst í huga það mál sem er efst á baugi þessa dagana og varðar utanríkismál mjög mikið og það er ástandið vegna Covid-veirunnar sem hefur geisað í mismiklum mæli milli landa. Svo virðist sem flest lönd hafi gripið til svipaðra aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar sem vonandi er nú í rénun. Alvarlegustu aðgerðirnar að mínu mati eru þær takmarkanir sem settar hafa verið á för fólks á milli landa. Við Íslendingar og íslensk stjórnvöld höfum borið gæfu til þess að grípa ekki til jafn harðra aðgerða og mörg ríki í kringum okkur, þótt við höfum um miðbik þessa faraldurs brugðið á það ráð að fylgja löndunum í Schengen, sem við höfum átt í ágætu samstarfi við, og loka ytri landamærum Schengen. Innri landamæri Schengen frá sjónarhóli Íslands hafa verið opin og það er fagnaðarefni og ágætt að leggja á það áherslu í umræðunni hér á landi og erlendis að þau hafa verið opin. Fyrir viku síðan eða svo var hins vegar brugðið á það ráð að kveða á um sóttkví fyrir þá útlendinga sem koma til Íslands, ólíkt því sem hafði verið boðað í upphafi faraldursins. Ég verð að segja að ég er ekki sátt við þá ákvörðun. Mér finnst ekki hafa verið tilefni til þess. Hingað eru ekki að koma ferðamenn í stórum stíl, því miður, ekki enn sem komið er og kannski ekki ástæða til að grípa til þeirra aðgerða sem sóttkví í tvær vikur er, enda vonast ég til að þetta verði mjög skammvinn aðgerð.
Þetta held ég að sé mál málanna í utanríkismálum í dag á milli ríkja, hvernig létta megi þeim takmörkunum sem settar hafa verið, hvernig við getum horft til þess að landamæri verði opin fyrir ferðamenn og þá sem eru í lögmætri för til landa án þess að þeir þurfi að sæta því að fara í svo íþyngjandi meðferð sem sóttkví er í tvær vikur í hverju einasta landi. Það hefur komið fram að einhverjir ráðherrar okkar hafa rætt þetta við kollega sína, a.m.k. á Norðurlöndum, og ég hvet hæstv. utanríkisráðherra til dáða í þeim efnum. Sjálf hef ég átt viðræður við kollega mína á Norðurlöndunum, formenn utanríkismálanefnda, og ég greini þar jákvæða afstöðu til samvinnu Norðurlandanna í þessu máli og óþreyju margra þingmanna á Norðurlöndum fyrir því að þessum takmörkunum verði aflétt. Menn gera sér það ljóst að það er alveg sama til hvaða sértækra aðgerða menn ætli að grípa, hvort sem það er hér á Íslandi eða í öðrum löndum, til þess að bjarga fyrirtækjum og efnahagslífinu, störfum fólks og lífsviðurværi, slíkar aðgerðir duga skammt ef ekki er opið fyrir viðskipti að öðru leyti. Samskipti við önnur lönd eru, eins og heimurinn hefur þróast sem betur fer, grundvallaratriði í því. Það er auðvitað sérstaklega mikilvægt fyrir eyland eins og Ísland sem hefur byggt sína velmegun og bætt kjör undanfarna áratugi einmitt á auknum samskiptum við útlönd. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að það verði forgangsraðað í störfum utanríkisþjónustunnar á næstu misserum, ég vona að það verði ekki á næstu árum sem það þurfi að gera en a.m.k. næstu vikum og misserum, að koma mönnum erlendis í skilning um að það er nauðsynlegt að fara að opna þetta og læra að lifa með veirunni.
Ég vil í þessu sambandi benda á að það hafa einmitt borist fréttir af því að Eystrasaltsríkin hafa tekið ákveðið frumkvæði innan Evrópu í þessum efnum með því að opna á för manna sín á milli. Þeirra væntingar standa væntanlega til þessa að víkka það út. En það er áhugavert að Eystrasaltsríkin skuli taka þetta frumkvæði sem maður hefði haldið að lægi beinast við að gera t.d. hérna á Norðurlöndunum eða í hinni gömlu Evrópu. Það er ekki fjallað sérstaklega um þetta í skýrslunni, hún hefur væntanlega verið í ritun eitthvað fyrir þennan tíma þótt það sé auðvitað gerð grein fyrir því að aðstæður hafa breyst að einhverju leyti hvað þetta varðar.
Sérstaka athygli mína vakti kafli á bls. 85 um netöryggi sem ég held að verði mjög til umræðu næstu misserin. Ég tel a.m.k. mjög mikilvægt að menn ræði það hvernig uppbyggingu á hinu svokallaða 5G kerfi verði háttað og lagasetningu í kringum það í ljósi öryggismála vegna þess að uppbygging á 5G er ekki bara einfalt fjarskiptamál heldur er alveg ljóst af umræðu alþjóðlega og í ýmsum löndum að þetta varðar mjög öryggismál ríkja. Ég vænti þess að í næstu skýrslu verði kannski ítarlegar fjallað um 5G.
Mig langar að lokum að nefna það, það hefur kannski ekki náðst að fara yfir það í þessari skýrslu, en ég held að það hljóti að vera óhjákvæmilegt fyrir okkur Íslendinga að í utanríkismálum verði forgangsraðað næstu árin í ljósi þeirrar efnahagslægðar sem blasir við út af Covid-veirunni. Hér eru auðvitað mjög mörg verkefni og ég ætla ekki að gera hæstv. utanríkisráðherra það að spyrja hann hér, ef hann ætlar að fjalla um það í lokaræðu sinni, hvort hann sjái fyrir sér einhverja möguleika á að forgangsraða og hvaða verkefni það væru, sérstaklega í þessari skýrslu, sem við mættum kannski síst vera án og hvaða verkefni það eru sem við helst gætum sett til hliðar í einhvern tíma. En það er alveg óhjákvæmilegt að menn leiti leiða til þess að draga saman í útgjöldum í þessum málaflokki eins og öllum öðrum. Þá kemur kannski vel á vondan, fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott, og í þessu veirufári hefur mönnum farið mjög fram með alls kyns fjarfundabúnað og í utanríkismálum hefur það skipt mjög miklu máli að geta haft samskipti við fólk úti í heimi með fjarfundabúnaði. Ég vænti þess að það fyrirkomulag sé komið til að vera og menn nýti sér það í ríkara mæli og opinberir starfsmenn utanríkisráðuneytisins og þingsins ferðist kannski aðeins minna en þeir hafa gert hingað til.