utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram með ræðu mína sem ég var rétt rúmlega hálfnað með áðan. Ég var að tala um fjarfundi en mikið hefur verið notast við þá hjá Norðurlandaráði undanfarið og einnig sá ég upplýsingar um það í þessari góðu skýrslu að varnarmálaráðherrar og utanríkisráðherrar hefðu fundað með fjarfundabúnaði í fyrsta sinn í sögunni og það hefði bara gengið nokkuð vel. Ég hef einnig þær upplýsingar frá fulltrúum Alþingis í Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu að fundað hafi verið jafnt og þétt síðustu vikur þannig að þarna eru tækifæri til framtíðar.
Ég ætlaði aðeins að koma inn á kaflann um öryggis- og varnarmál á bls. 21. Þar er verið að tala um upplýsingaóreiðu og hún sé núna mikið til umfjöllunar hjá Sameinuðu þjóðunum og undirstofnunum. Röngum upplýsingum sé sérstaklega beint gegn einstökum ríkjum og alþjóðastofnunum og grafi undan öryggi ríkja og trausti almennings til stofnana og stjórnvalda. Þjóðaröryggisráð setti nýlega á fót vinnuhóp um upplýsingaóreiðu og markmiðið er að kanna umfang skipulagðrar útbreiðslu rangra eða misvísandi upplýsingar um Covid. Það verður áhugavert að sjá þær niðurstöður. Það er mikil vinna í gangi og mikil áhersla á þennan málaflokk eins og fram kemur í skýrslunni.
Herra forseti. Traust er ein af mikilvægustu undirstöðum lýðræðislegra samfélaga og falskar fréttir og upplýsingaóreiða er raunveruleg ógn við lýðræðið sem ber að taka mjög alvarlega. Þegar fólk getur ekki treyst þeim upplýsingum sem það fær er því ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun og uppfylla þar með lýðræðislega skyldu sína. Ég óttast auðvitað umfang, afl og möguleika þeirra sem dreifa vísvitandi fölskum fréttum til að grafa undan grunngildum lýðræðislegra þjóðfélaga sem og alþjóðastofnunum. En á sama tíma fagna ég þeirri áherslu sem bæði stofnanir, ríki og samtök og háskólasamfélagið leggja nú á þennan málaflokk. Mig langaði að nefna að ég var nýlega á málþingi á vegum þjóðaröryggisráðs og Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands þar sem þetta var til umfjöllunar. Það kom fram mjög mikið af áhugaverðum upplýsingum og í stuttu máli sagt er mjög mikilvægt að við greinum betur hér á landi þessar fölsku upplýsingar. Það er sem sagt verið að vinna að því í vinnuhóp á vegum þjóðaröryggisráðs. Annað sem mér fannst merkilegt er að eldra fólk, sem sagt 60+, er líklegra til að dreifa fölskum upplýsingum. Unga fólkið okkar sem fær fræðslu í skólum, er varara um sig og hugsar sig frekar tvisvar um áður en það dreifir fölskum upplýsingum, það er læsara á upplýsingarnar. Það er því mjög mikilvægt að eldra fólkið fái líka þessa fræðslu og að stjórnvöld beiti sér sérstaklega fyrir því. Það var eiginlega svolítið skelfilegt að sjá hversu auðvelt það er að búa til falskan prófíl og leika sér að fólki á netinu og safna gríðarlega miklum persónulegum upplýsingum á netinu án þess að fólk átti sig á því. Það er mjög auðvelt þó að maður sé ekki mjög flinkur á tölvur. Þetta var skuggalegt þannig að við þurfum að vinna í þessu.
Tíminn styttist. Mig langaði að nefna netöryggismálin. Margir hafa gert það í dag og ég tek bara undir að það er mikilvægt að vinna vel með okkar norrænu samstarfsaðilum og einnig vinum í Eystrasaltsríkjunum sem hafa mjög mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði. Mér fannst áhugavert það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talaði um áðan, að þetta er náttúrlega víðast hvar í hinum löndunum varnamál en þar sem við erum ekki með her er umgjörðin svolítið önnur. Það er fjallað um þetta í skýrslunni á bls. 85.
Ég ætlaði líka að tala um auðlinda- og umhverfismál á bls. 41 og vildi náttúrlega nefna skýrsluna frá Birni Bjarnasyni sem við eigum fljótlega von á, Bjarnason-skýrsluna. En margt hefur breyst síðan Stoltenberg-skýrslan kom út og heimurinn breytist hratt og við því þurfum við að bregðast. Kórónuveiran hefur hrint okkur áfram inn í tíma mikilla breytinga og jafnvel byltinga.
Ég hugsa að ég láti þetta duga enda hef ég ekki meiri tíma. (Forseti hringir.) Hafið og sá samningur sem er talað um á bls. 33 er líka mjög merkilegur og athyglinnar virði. En ég þakka fyrir gott hljóð.