utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Já, við erum algerlega sammála um að þessi skýrsla þarf miklu meira pláss á þinginu. Þetta eru oft á tíðum ólíkir málaflokkar og það er mjög óþægilegt að þurfa í raun bara að telja upp kaflaheiti og fagna einhverju, við höfum mjög lítinn tíma til að fara almennilega ofan í hlutina og taka inn meiri upplýsingar sem tengjast þessum umfjöllunarefnum. Það er stiklað á allt of stóru og það er ekkert tilefni til þess heldur þvert á móti, þannig að ég hvet forsætisnefnd og forseta Alþingis til að horfa til þess að breyta fyrirkomulaginu við gerð næstu starfsáætlunar. Við erum að fjalla um risastór mál eins og t.d. netöryggismálin, við gætum þess vegna tekið heilan dag í það hér vegna þess að það er mál sem tekur mikið pláss hjá þjóðunum í kringum okkur og ekki að ástæðulausu. Það er allt undir. Okkar þjóðaröryggi er undir. Þessu þurfum við að gefa meiri tíma og enn og aftur að vinna vel með okkar vinaþjóðum á þessum vettvangi.
Ég heyrði að hæstv. ráðherra var sammála um að við ættum að dýpka okkar norræna samstarf og mig langaði til að inna hann sérstaklega eftir þessu bréfi sem forsætisnefnd Norðurlandaráðs sendi til forsætisráðherranna. Ég held að hæstv. ráðherra hafi séð það. Þar er verið að undirstrika að gerð verði norræn áhættugreining og viðbúnaðaráætlun og að komið verði á fót (Forseti hringir.) óháðri norrænni viðbúnaðarnefnd. Hvað finnst hæstv. ráðherra um það?