utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Það er kannski fáu að svara en þetta er ágætissamtal sem við eigum hér. Mér finnst gott að heyra hversu umhugað hæstv. ráðherra er um norrænt samstarf og þessi Borgarnesfundur var mjög góður, skilst mér, og menn eru í mjög reglubundnu samtali.
Mig langaði til að nefna aðeins það sem ég hafði ekki tíma til áðan, varðandi loftslagsmálin, þ.e. auðlinda- og umhverfismálin á bls. 41 og svo áfram í skýrslunni. Ég sé að það er ekki bara í þessum kafla, það má sjá víða í skýrslunni einmitt þessa auknu áherslu íslenskra stjórnvalda á þessa málaflokka. Auðvitað hefur hagsmunagæsla okkar alltaf verið mjög virk og öflug varðandi auðlindamálin eins og gefur að skilja, en þá með áherslu á málefni hafsins sérstaklega. Mig langaði bara rétt að segja, svo það verði sagt hér í ræðustól, að mér finnst einnig mjög mikilvægt starf okkar Íslendinga á sviði jarðvarmamála. Þar erum við í fremstu röð í heiminum með mikla þekkingu, frábæra sérfræðinga. Við höfum tekið þátt í átaki Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra orku fyrir alla og svo erum við og orkugeirinn á Íslandi náttúrlega í samstarfi við þróunarríki til að miðla þekkingu á þessu sviði.
Þá kem ég kannski enn og aftur að fjarfundum og kolefnisfótsporinu. Ég heyrði kannski ekki hæstv. ráðherra svara því en ég held að það sé fullt tilefni til þess og í ljósi þess að við þurfum að draga saman í ríkisfjármálunum á næstunni, miðað við þennan faraldur sem gengur nú yfir, en þarna er gríðarlegt tækifæri til að fækka kolefnissporum og draga úr losun. Ef maður fer inn á kolefnisspor.is (Forseti hringir.) og setur inn nokkrar flugferðir, þó að það sé ekki nema ein á ári erlendis, hækkar það gríðarlega. Er hæstv. ráðherra ekki sammála því að það sé fullt tilefni til þess að bæði ráðuneytið (Forseti hringir.) og Alþingi leiti leiða til að fækka fundum þó að sjálfsögðu sé mjög mikilvægt að hittast líka í persónu reglulega?