150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[16:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til þess að þrýsta eins og hægt er á Bandaríkjamenn þannig að Alþjóðaviðskiptastofnunin geti alla vega haldið áfram að stuðla að því að eðlileg milliríkjaviðskipti eigi sér stað og reynt að tala fyrir m.a. grænum lausnum til lengri tíma í hagkerfi heimsins. Það skiptir miklu máli að ekki sé grafið undan alþjóðastofnunum eins og Bandaríkjastjórn er að gera núna, því miður, gagnvart Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. En það er önnur saga.

Mér finnst mikilvægt að nefna varnarmálin, ég kom því ekki að áðan, það er náttúrlega risastór pakki og er hluti af því sem við ættum að tala um og sem nefndarmaður í NATO-nefndinni held ég að það væri ágætt að við myndum óska eftir því við forseta að hér færi fram sérstök umræða um NATO og varnarmálin. Hér þurfa að vera hernaðarmannvirki og þau umsvif sem því fylgja, og ég hef stutt það, en mér finnst líka skipta máli að þetta fari eftir réttum boðleiðum. Það þarf að fara í gegnum þinglega meðferð, í gegnum lýðræðislega umræðu. Það hefur til að mynda alltaf verið prinsipp hjá Sjálfstæðisflokknum að blanda ekki saman hagsmunum viðskipta og varna. Það er alltaf sjálfstætt hagsmunamat þegar varnir Íslands eru metnar. Það hefur haft gríðarlega mikla og sterka þýðingu fyrir okkur Íslendinga að vera aðilar, stofnaðilar, að Atlantshafsbandalaginu og við höfum farið vel með það vald. Við höfum haldið uppi lýðræðislegri umræðu en það verður að vera gert á forsendum þingsins, það sé mat þingsins hverjir eru varnarhagsmunir þjóðarinnar hverju sinni en ekki metið út frá efnahagslegum hagsmunum tiltekinna svæða eða greina. Þannig verður að líta á það. Mér þætti gott ef hæstv. ráðherra kemur hingað upp í andsvar að vita hvernig hann horfir á mat þessara tilteknu hagsmuna.