150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[16:07]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður getur alveg treyst því að ég tala fyrir frelsi í viðskiptum og hef alltaf gert og mun alltaf gera. Hv. þingmaður talar um að taka ákveðna aðila út og þá hef ég t.d., meira sem þingmaður en ráðherra, þegar ég hef haft tækifæri til að hitta forystumenn Evrópusambandsins, talað mjög gegn þeirri verndarhyggju og verndarstefnu sem þar er. Sem betur fer stöndum við miklu framar þegar kemur að frelsi í viðskiptum en Evrópusambandið. Hv. þingmaður var að ræða þessi mál og mér fannst hún gleyma þeim sem standa okkur jafnvel nær. Við vitum að ef við gengjum í Evrópusambandið myndu tollar á ýmsum vörum hækka gríðarlega. Tollfrelsi okkar Íslendinga er svona 90% á meðan það er í Evrópusambandinu, ef við tökum tollalínuna, 26%. Þetta er eitt af því sem kemur fram í gögnunum þegar menn voru í aðlögunarviðræðunum. Í ofanálag þyrfti að setja fleiri milljarða í kerfi til að flækja tiltölulega einfalt tollkerfi sem við erum með núna, svo einhver dæmi séu tekin. Síðan getum við farið út í tæknilegu viðskiptahindranirnar líka. Ef við erum að tala almennt um viðskiptamálin í heiminum eru tollar ekki lengur stærsta vandamálið heldur hefur tæknilegum viðskiptahindrunum vaxið mjög ásmegin. Það kemur illa niður á öllum löndum en þó sérstaklega okkur Íslendingum sem eigum svo mikið undir frjálsum heimsviðskiptum.

Varðandi varnarmálin og öryggismál þá verð ég viðurkenna að ég skildi ekki alveg hvað hv. þingmaður var að fara, en afstaða okkar er mjög skýr. Við erum auðvitað að fylgja þeirri stefnu sem við höfum gert um langa hríð. Við erum virkir aðilar að Atlantshafsbandalaginu og með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Það þýðir, bæði fyrir okkur sem og bandalagið því að við erum mikilvægur hlekkur í Atlantshafsbandalaginu og vörnum þess, að hér þarf að vera aðstaða. Við Íslendingar höfum hins vegar fram til þessa notað hana mjög, bæði þegar kemur að fluginu, ljósleiðaranum, höfnum og öðru slíku, og höfum gert það um áratugaskeið. Það er ekkert því.