utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Það var gríðarlega mikilvægt að fá þetta inn. Ég hélt um tíma að utanríkisráðherra væri orðinn talsmaður þess að reyna að koma upp múrum og höftum frekar en hitt vegna þess að því er ekki að leyna að við höfum upplifað að ráðherrar í ríkisstjórninni hafi talað um að hækka tollmúra, auka tollvernd á meðan þetta ástand varir. Við erum búin að heyra það af hálfu ráðherra í ríkisstjórn. Það skiptir gríðarlega miklu máli að menn séu mjög á varðbergi hvað það varðar og ég hlýt þá að gefa mér að þegar hæstv. ráðherra fer í samtöl og viðræður við Breta út af Brexit haldi hann einmitt þessum sjónarmiðum mjög á lofti, að viðskiptafrelsi þurfi að vera hér á milli ríkja. Þá verður hann líka að takast á við það þegar Bretar óska eftir því m.a. að koma með landbúnaðarvörur hingað inn til Íslands. Það verður fróðlegt að heyra viðhorf ráðherra til þess.
Mér finnst hins vegar miður að finna alltaf þessa meinbægni sem kemur af og til í garð Evrópska efnahagssvæðisins og Evrópusamstarfsins sem hefur skilað mestum ávinningi fyrir íslenska þjóð á síðastliðnum 25 árum. Það þarf alltaf í lokin aðeins að hnýta í sambandið og samninginn og allt er svo ómögulegt, allt svo ónýtt og reyna að tala það niður í staðinn fyrir að tala það upp (Gripið fram í.) og reyna að draga fram það sem skiptir máli. Það sem skiptir m.a. máli er að neytendavernd (Gripið fram í.) hefur aukist. Við erum með frumvörp frá ráðherra í ríkisstjórninni, frá Sjálfstæðisflokknum sem dregur m.a. úr neytendavernd. Eigum við að tala um inneignarnótur og ferðaskrifstofur? Bara lítið dæmi um það hvernig menn umgangast þetta vald sitt. Eða þá frumvarp frá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn sem m.a. miða ekki að því að auka og efla samkeppni og Samkeppniseftirlitið heldur frekar að draga úr eftirlitinu. Þess vegna skiptir lýðræðislegt aðhald hér á þinginu máli. (Forseti hringir.) Þess vegna skipta svona umræður um utanríkispólitík máli af því að það á endanum er alltaf verið (Forseti hringir.) að reyna að þrengja í staðinn fyrir að víkka út. Það þarf að halda hér uppi umræðu um frjálst samfélag, opið samfélag, alþjóðlegt samfélag.