utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Okkur hefur orðið tíðrætt um þann tíma sem okkur skortir til að fara í nánari umræðu um þennan mikilvæga málaflokk sem utanríkismálin eru. Mig langaði aðeins til að bæta við í þessari styttri ræðu minni um baráttuna við falsfréttir og rangfærslur. Það var gott að heyra hv. þm. Silju Dögg Gunnarsdóttur, forseta Norðurlandaráðs, minna á það að með formennsku sinni í Norðurlandaráði hefur Ísland komið fram vilja til þess á vettvangi Norðurlandaráðs að leita svara við því hvernig yfirvöld, stjórnmálamenn, borgaralegt samfélag og aðrar stofnanir geta brugðist við upplýsingaóreiðu og dreifingu á rangfærslum. Þetta er gríðarlega mikilvægt vegna þess að þetta er auðvitað þjóðaröryggismál, líkt og farsóttir, og þetta tvennt þurfum við að setja svolítið ofar í mikilvægisröðina þegar við ræðum utanríkismálin og þjóðaröryggismál. Farsóttir voru í fyrstu tillögum um þjóðaröryggi og þjóðaröryggisstefnuna ekkert sérstaklega hátt á blaði en í ljósi þeirrar reynslu sem við erum að upplifa núna þurfum við sannarlega að hafa það þannig. Þetta kemur einmitt við sögu í tengslum við Covid-19, dreifing á falsfréttum og röngum upplýsingum sem villir um fyrir fólki og býr m.a. til þrýsting á að hlýða ekki sérfræðingum og vísindafólki. Það kemur meira að segja við sögu í umræðunum hér í þingsal þegar þingmenn á borð við formann hv. utanríkismálanefndar koma hér fram og segja að nú verðum við að demba okkur í það að opna landamærin sem fyrst. Mig langar bara að minna á að ein af ástæðum þess af hverju Íslendingum hefur gengið svo vel í baráttunni gegn Covid-19 er að við höfum á að skipa mjög góðum sérfræðingum og mjög góðu vísindafólki og við höfum borið gæfu til að hlusta á það fólk og hlýða því, en við hlýðum líka og hlustum á og berum virðingu fyrir þeim alþjóðastofnunum sem við erum aðilar að, líkt og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Við höfum borið gæfu til að hlíta þeim ráðleggingum sem þaðan koma en grafa ekki undan þeim alþjóðastofnunum sem við eigum aðild að. Þó að óþreyjan sé mikil, þó að við viljum láta allt fara í gang, þá verðum við samt að halda áfram að bera virðingu fyrir vísindum, bera virðingu fyrir þeim ráðleggingum sem fram koma frá sérfræðingum í þeim alþjóðastofnunum sem við eigum aðild að. Ég árétta það bara og hvet hæstv. utanríkisráðherra til þess og ég veit að hann gerir það, þó svo að það komi þrýstingur héðan frá nokkrum þingmönnum um að gera það ekki og liðka til eða slaka á. Við erum alltaf betur í stakk búin til að takast á við svona ákvarðanir þegar við hlustum á vísindamenn og faglegar ráðleggingar og treystum því sem alþjóðastofnanir koma sér saman um.
Ég vildi líka að minna á það varðandi varnarmálin að það er kannski komin ástæða til að fara að tala um þau og fara í sérstaka umræðu þegar þingstörfin komast á skrið og í eðlilegt form, en þá verðum við líka að geta talað um breytt öryggismat, um öryggismatið sem liggur til grundvallar þeim ákvörðunum sem við höfum verið að taka varðandi uppbyggingu og auknar fjárfestingar í varnarmannvirkjum. Við þurfum kannski að taka það líka með inn í þá umræðu. Við erum öll svolítið málþurfi hér eftir nokkrar vikur af öðruvísi þingstörfum en ella og þess vegna liggur okkur mikið á hjarta og kannski sérstaklega þegar tíminn í þessari umræðu er ekki alveg eins langur og mörg okkar héldu. En það er alveg ljóst að á þessum undarlegu tímum sem við höfum upplifað undanfarnar vikur skiptir ótrúlega miklu máli að halda styrk þegar kemur að alþjóðasamvinnu og samstarfi og ekki að grafa undan alþjóðastofnunum sem við eigum aðild að heldur þvert á móti að styrkja þær og festa í sessi. Þannig styrkjum við alþjóðasamstarf og alþjóðasamvinna og alþjóðasamtalið sem við verðum að eiga. Þó svo að fjarfundabúnaður hafi kannski orðið til þess að við getum tekið fleiri fundi í gegnum tölvuna og heima hjá okkur, skiptir líka miklu máli að hittast og búa til tengsl og eiga þannig samtöl líka, fara aðeins út fyrir okkar eigin landamæri og hitta fólk og sjá hvernig reynslan er annars staðar í öðrum samfélögum. Þetta held ég að við séum öll sammála um sem erum í þingsal núna a.m.k. Ég vildi bara minnast á þetta vegna þess að hv. þm. Silja Dögg kom inn á þessa mikilvægu þætti sem falsfréttir og rangfærslur eru vegna þess að við höfum séð þá ógna lýðræðinu og mannréttindum og virðingu fyrir lögum og reglum. Við höfum séð það gerast á ógnarhraða. Við höfum líka séð það þegar kemur að hatursglæpum (Forseti hringir.) sem fjölgar, mig langaði líka til að minnast á það vegna ræðu (Forseti hringir.) hv. þm. Birgis Þórarinssonar um ofsóknir vegna trúar, en þar spila rangfærslur og falsfréttir mikið inn í. — Ég þakka fyrir, hæstv. forseti.