fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni mjög mikilvægar spurningar. Þetta er eitthvað sem er bara hluti af vinnu okkar. Ég ætla kannski að byrja þar sem hv. þingmaður endaði. Við höfum mjög ríkt eftirlitshlutverk og það heitir eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Ég get alveg tekið undir það sem hv. þingmaður er að varpa hér fram, oft eru ekki nægjanlega skýrar og afmarkaðar upplýsingar og gögn sem fylgja þeim ákvörðunum sem hafa verið teknar. Varðandi lokunarstyrkina er það annað þingmál en þar liggur að baki áætlun um hversu mikill fjöldi fyrirtækja muni falla undir þær afmarkanir sem þar eru lagðar til. Varðandi geðheilbrigðismálin liggur þar helst til grundvallar fjöldi starfa sem er á bak við ráðningar fleiri sálfræðinga og geðlækna og þeirra sem eiga að koma inn í þá mynd með heilsugæslunni og teymi þar að lútandi. En þetta er mjög mikilvægur punktur sem hv. þingmaður dregur fram.