fjáraukalög 2020.
Virðulegur forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. þingmanni fyrirspurn hans. Hann færði í tal þennan samanburð. Ég vil minna hv. þingmann á það að í umræðu um laun alþingismanna, ráðherra og embættismanna tekst nú yfirleitt að setja það í eitthvert viðkvæmt ljós. Ég vil í fyrsta lagi rifja upp og minna á, þó að ég hafi ekki prósentur á takteinum rétt eins og hv. þingmaður virðist hafa, að launaþróun þess hóps sem við tilheyrum hefur skilið sig frá almennri launaþróun í landinu. Hvort það sé eðlilegt að taka upp sömu reiknireglu milli þessara hópa sem hann gerir hér að umtalsefni og stilli þessu saman svona hlið við hlið, þá vil ég einfaldlega segja: Hafa lög verið brotin í þessum efnum? Er þetta spurningin um hvort þessi reikniregla sé eitthvað réttari en einhver önnur? Það er bara önnur umræða sem ég held að ég sé tilbúinn að taka hérna í stuttu andsvari við hv. þingmann. Það má á hverjum tíma stilla upp launaþróun alþingismanna í neikvætt ljós. Það er ákveðin íþrótt sumra stjórnmálamanna að gera það. Með þessu er ég ekki á nokkurn hátt að segja að það sé eitthvert samþykki mitt fyrir því hvernig þróun fyrir almannatryggingar hefur verið á þeim vettvangi. Ég vil bara segja að frá þeim tíma sem ég hef setið á Alþingi, frá árinu 2013, hefur þessi umræða komið upp á hverju ári. Við höfum farið eftir þeim reiknireglum sem þar eru settar fram og fylgt þeim. Settar voru upp ákveðnar reiknireglur fyrir kjaramál eða fyrir launaþróun þeirra embættismanna og þjóðkjörinna einstaklinga, sem hv. þingmaður vitnar til, og við erum að fara eftir þeim reglum í hvívetna, en það er síðan allt önnur umræða hvort það eigi að vera sama reiknireglan.