150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

málefni öryrkja og eldri borgara.

[15:09]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Enn og aftur kem ég upp og spyr svo til sömu spurninganna og ég mun gera það, koma aftur og aftur og spyrja hæstv. forsætisráðherra þangað til ég fæ viðunandi svör: Hvenær kemur sá tími að öryrkjar og verst settu eldri borgarararnir fái réttlætið á sinn disk? Hæstv. forsætisráðherra boðaði það fyrir tveimur eða þremur árum. Er ekki þeirra tími kominn núna eða kemur þeirra tími ekki í góðæri, ekki í niðursveiflu og alls ekki í Covid-19 faraldri? Er það stefna hjá þessari ríkisstjórn að þessi verst setti hópur bíði enn þá í röð eftir mat, og þá hversu lengi? Hvað með þá sem ekki komast í röð eftir mat eða fá hann ekki sendan heim, hvað eiga þeir að gera? Þá er bara að bíða og bíða og herða þá sultarólina. Það er ekkert mál hjá þessari ríkisstjórn að setja 50 milljónir í viðbót til einkarekinna fjölmiðla í eigu auðmanna og pólitískra afla, þá í heild 400 milljónir, en bara 6% af því til hjálparstofnana, þeirra stofnana sem aðstoða þá sem eru í fátækt og sárafátækt með mat og nauðsynjar.

Hvernig í ósköpunum stendur á því að ekki er hægt að setja 400 milljónir þangað alveg eins og 400 milljónir til einkarekinna fjölmiðla í eigu auðmanna? Hvernig stendur á því að það eru bara til 25 milljónir fyrir þessa hópa? Hvernig eiga þær að skiptast og hvað verður mikið til skiptanna þegar búið er að deila þessu niður á allar þessar hjálparstofnanir? Það verða því miður smáaurar.

Félagshjálparpakki hjá ríkisstjórn þinni, hæstv. forsætisráðherra, er bara 3–5% en aðrir fá, þar á meðal milljónagróðafyrirtæki, 95–97% af upphæðinni. Þetta sýnir svart á hvítu hverjir eru í forgangi.

Tími þeirra fátæku er ekki kominn. Hvenær kemur hann?