150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

leigubílstjórar og hlutabætur.

[15:16]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ein þeirra stétta sem virðist hafa orðið út undan í aðgerðum hæstv. ríkisstjórnar til þessa er stétt leigubílstjóra. Þar ber kannski fyrst að segja að leigubílstjórar virðast ekki hafa fengið leyfi til að sækja um og fá hlutabætur. Af hverju er það? Engin ráðstöfun virðist vera í gangi fyrir leigubílstjóra sem eru 70 ára og eldri sem eru um 70 einstaklingar af þeim sirka 600 sem hafa atvinnuleyfi. Leigubílstjórum er gert að leggja inn atvinnuleyfi sitt til að njóta atvinnuleysisbóta. Á þetta við um fleiri? Á þetta við um vörubílstjóra? Á þetta við um trillukarla sem leggja bátum sínum af því að það er búið sem þeir mega veiða? Á það við um þá sem stunda leyfisskyldan smáatvinnurekstur á eigin kennitölu, svo sem í ferðamennsku o.s.frv.? Þurfa þessir aðilar að skila inn leyfi til að njóta bóta?

Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann telji að þær ráðstafanir sem gerðar eru gagnvart leigubílstjórum standist jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og hvort þær standist 75. gr. stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi. Ég tel sjálfur, þó að ég sé ekki löglærður, að þetta geti orkað mjög tvímælis. En kannski er stærsta spurningin þessi: Hvers vegna geta leigubílstjórar ekki sótt um hlutabætur? Það er lítill vandi að fylgjast með innkomu þeirra. Hún er sirka 80% minni núna en hún var á sama tíma í fyrra. Hvað vill hæstv. ráðherra gera í þessu?