leigubílstjórar og hlutabætur.
Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að ástandið í samfélaginu hefur auðvitað ekki farið fram hjá leigubílstjórum. Það að hér séu engir erlendir ferðamenn hefur haft veruleg áhrif á umhverfi þeirra og staðan í samfélaginu, sérstaklega í apríl á meðan við vorum í samkomubanni, hefur enn fremur orðið til þess að hefðbundin starfsemi hefur minnkað og legið niðri. Þess vegna var gripið til þess ráðs strax í upphafi að veita mönnum heimild til að skilað inn starfsleyfinu til að menn gætu sótt um atvinnuleysisbætur.
Eins og hv. þingmaður þekkir eru mjög sérstakar reglur og lög sem gilda um leigubílaakstur á Íslandi, sérstaklega um aksturinn og heimildina til að fá að aka leigubíl og alls konar skilyrði sem eru sett á þá starfsemi langt umfram öll önnur störf og greinar sem hv. þingmaður taldi upp og þess vegna er engin þörf á að undanskilja það. Það þurfti að undanskilja það frá lögunum og í dag er það þannig að ef menn skila ekki inn starfsleyfinu og geta ekki gert það tímabundið án þess að missa starfsleyfið geta þeir ekki sótt um atvinnuleysisbætur. Staðan er sú í þessum skilyrta heimi leigubílstjórans að hann verður að vinna alla daga nema 35.
Ef við værum hins vegar búin að skipta um löggjgöf og samþykkja frumvarp sem er fyrir þinginu hefðu leigubílstjórar væntanlega verið í hlutabótastörfum og getað sótt um hlutabætur vegna þess að þá væru ekki þessi skilyrði í kringum stéttina. Hún er niðurnjörvuð í lagaramma sem hefur kannski verið gerður upphaflega til að vernda þá en kemur þeim að einhverju leyti í koll núna. Staðan sem er uppi er vond, (Forseti hringir.) að menn geti ekki sinnt vinnu hlutfallslega. Ég tek undir með hv. þingmanni í því, en hugmyndin var sú að sumir gætu skilaði inn starfsleyfinu og aðrir sinnt þessari starfsemi. Vonandi verður meiri starfsemi fyrir fleiri þegar samfélagið fer í gang.