leigubílstjórar og hlutabætur.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þau svör sem bárust. Ég vil nefna tvennt í viðbót. Nýlega var gefin út undanþága frá 2 metra reglunni fyrir strætó en það er ekki búið að gefa út undanþágu frá 2 metra reglunni fyrir leigubílstjóra. Margir leigubílstjórar reka bíla sem eru átta manna bílar sem þeir eru búnir að breyta í fjögurra manna bíla en jafnvel þeir fá ekki undanþágu frá 2 metra reglunni. Spurningin er: Hvers vegna?
Það er rétt sem hæstv. ráðherra segir, u.þ.b. þriðjungur launa þeirra kemur af erlendum ferðamönnum sem verða væntanlega ekki hér næstu mánuði, og þá er önnur spurning: Af hverju er við þessar aðstæður verið að gefa út 19 ný leyfi til leigubifreiðaaksturs? (Forseti hringir.) Hvers vegna?