150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

atvinnuleysi meðal námsmanna.

[15:26]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og formanni velferðarnefndar fyrir þessa fyrirspurn. Henni er auðsvarað. Nei, auðvitað eru þeir sem eru á atvinnuleysisbótum ekki þar vegna þess að þeir vilja ekki vinna. Það gefur alveg augaleið og svarið er mjög einfalt. Það sem ég er hins vegar að segja er að við fórum af stað með úrræði sem miða að því að skapa störf fyrir námsmenn vegna þess að við viljum hafa þá í virkni. Við viljum geta skapað störf fyrir sem flesta. Við tókum úrræði sem sett voru af stað í vinstri stjórninni sem miðuðu að því að skapa sumarstörf með stuðningi hins opinbera. Á sínum tíma voru sköpuð 900 störf. Það sem við fórum af stað með eftir samtöl við sveitarfélögin var að sveitarfélögin voru tilbúin í upphafi til að skapa um 1.000 störf. Þess vegna var farið inn með um 3.000–3.400 störf sem jafnframt er þreföldun eða fjórföldun á því sem gert var hér 2009 og 2010. Það ánægjulega sem ég var að segja frá í þessum þætti og get sagt hér líka er að sveitarfélögin skiluðu á föstudaginn og voru þá komin með 2.900 störf. Síðan hefur bæst í það yfir helgina og í morgun voru komin 3.076 störf, bara frá sveitarfélögunum. Þá á eftir að koma frá opinberum stofnunum.

Það sem ég er að segja er að ég tel miklu betra að fjármunum sé varið til þess að skapa störf fyrir þetta unga fólk, fyrir námsmenn og aðra. Það er það sem við ætlum okkur að gera. Ég held líka að það væri skynsamlegra að auka fjárveitingu í þessi sumarstörf vegna þess að það er hægt að skapa þau, heldur en að setja fólk á atvinnuleysisbætur. Atvinnuleysisbætur eru neyðarúrræði og við eigum að skapa störf fyrir námsmenn, eins mörg og við mögulega getum. Það er það sem ríkisstjórnin ætlar að gera. Fyrstu störfin fara vonandi í auglýsingu í þessari viku. Síðan þegar við fáum inn frá opinberu stofnununum kann vel að vera að það komi enn fleiri störf þar. Vonandi tekst okkur ætlunarverkið að skapa nægilega mörg störf fyrir alla námsmenn í landinu, sumarúrræði í (Forseti hringir.) gegnum nýsköpunarsjóð og annað og þá skulum við taka umræðuna aftur, kæri þingmaður.