150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

framkvæmd aðgerða ríkisstjórnarinnar.

[15:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Steindóri Valdimarssyni kærlega fyrir fyrirspurnina. Hver er stefnan? spyr hv. þingmaður. Ég hefði haldið að hún væri morgunljós því að það lá fyrir í upphafi þessa faraldurs, þegar hann skall á, að heilbrigðissjónarmið yrðu yfirskipuð öllum okkar ákvörðunum. Það er ástæðan fyrir því að Ísland vekur núna athygli víða um heim fyrir það hvernig okkur hefur miðað í því að ná tökum á faraldrinum, nokkuð sem hefur gengið mjög misjafnlega hjá þjóðum heims þar sem við erum öll í sömu stöðu. Við erum öll í þeirri sömu stöðu að eiga við óþekktan óvin. Ég veit að einhverjir hafa gagnrýnt það að ég tali um þessa veiru sem óvin en ég held hins vegar að þeir sem hafa smitast af henni upplifi hana nákvæmlega sem óvin. Við höfum sýnt fram á það með okkar stefnu í þessum málum, sem ég hef talið hingað til að sé mikil sátt um í þessum sal, að við sammæltumst um að hlýða ráðum vísindamanna, setja heilbrigðissjónarmið í forgang og takast svo á við afleiðingar faraldursins. Af því að óvissan er mikil getum við ekki séð fyrir til að mynda hvort faraldurinn blossar upp aftur. Við vitum að það er ekki ósennilegt og út frá því getum við illa sett aðra stefnu en þá að vera reiðubúin og tryggja að heilbrigðiskerfið okkar sé reiðubúið að takast á við það ef svo fer.

Síðan eru aðgerðir okkar í efnahagsmálum. Þar held ég að við séum líka sammála um þá stefnu að mikilvægast sé að halda uppi atvinnustigi. Hv. þingmaður segir að hlutabótaleiðin sé meingölluð að mati einhverra. Það er ekki mín skoðun. Hlutabótaleiðin hefur reynst alveg gríðarlega mikilvægt úrræði til að halda uppi atvinnustigi. Við hefðum illa getað ráðist í slíka aðgerð ef við hefðum ákveðið að lækka tryggingagjald (Forseti hringir.) af því að við fjármögnum m.a. atvinnuleysistryggingar okkar með tryggingagjaldinu. Hins vegar getum við vafalaust útfært skýrari skilyrði fyrir notkun hlutabótaleiðarinnar og það stendur til.