150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

framkvæmd aðgerða ríkisstjórnarinnar.

[15:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Úr því að hv. þingmaður sá ástæðu til að fara að endursegja svar mitt ætla ég að endursegja spurningu hans því að hann spurði sérstaklega um stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum, til að mynda ef önnur bylgja faraldursins skylli á. Mér fannst það ekkert óskynsamleg nálgun hjá hv. þingmanni því að aðgerðir okkar í efnahagsmálum hljóta að ráðast einmitt af heilbrigðissjónarmiðum. Ég frábið mér að hér sé skilað auðu því að stóra málið um það hvernig þróun efnahagsmála verður er hvernig okkur tekst að fylgja heilbrigðissjónarmiðum og ná tökum á faraldrinum. Ég hefði haldið að hreyfing hv. þingmanns og mín hreyfing væru sammála um þann forgang.

Þegar kemur að því að halda uppi atvinnustigi hef ég einfaldlega ekki verið sammála áherslum Viðreisnar um að lækka skatta á fyrirtæki. Með lækkun tryggingagjalds hef ég talið eðlilegra að nýta þann mikilvæga skattstofn til að tryggja afkomu launafólks í landinu. Það gerum við með hlutabótaleiðinni. Það gerum við með ýmsum fleiri aðgerðum. Þar held ég að reyni einmitt á það (Forseti hringir.) hversu mikilvægt er að við höldum uppi því öfluga félagslega kerfi sem við eigum og það þurfum við að eiga áfram inn í framtíðina.