150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

stefna í samgöngumálum.

[15:41]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp þetta mikilvæga verkefni, samgöngumsáttmálann. Við vorum með frumvarp í 1. umr. í síðustu viku og það er unnið að því að ganga frá samningnum sem snýr að Vegagerðinni sem er aðalframkvæmdaraðilinn. Það er gríðarlega mikilvægt að koma þessu verkefni áfram, ekki síst í því ljósi sem við ræddum fyrr í þessum óundirbúna fyrirspurnatíma, þ.e. að búa til fleiri störf. Þetta er fjárfestingarverkefni á stóra skalanum, upp á 120 milljarða.

Það sem mér finnst ánægjulegast við þetta verkefni, ég veit að við hv. þingmaður deilum ekki nákvæmlega þeirri skoðun, er að hér hafi tekist að ná saman sveitarfélögunum sex á höfuðborgarsvæðinu í sameiginlega sýn í því hvernig við leysum úr umferðarvanda framtíðarinnar. Það gerum við með því að byggja upp bæði stofnbrautirnar og almenningssamgöngur. Ég veit að á þessum tímum alls konar takmarkana á samskiptum fólks hafa sum lönd gengið svo langt að banna almenningssamgöngur, eins og hv. þingmaður benti á með Bretland, en það er auðvitað tímabundin aðgerð. Við erum að leggja af stað í þetta risavaxna verkefni. Það er endurskoðun á öllum verkefnum. Það er búið að vera í undirbúningsferlinu. Vegagerðin er komin með það verkefni til sín sem hefur verið kallað Borgarlínustofa, þ.e. það umhverfi sem var áður hjá Reykjavíkurborg er komið til Vegagerðarinnar og þar hefur starfsfólk verið í áframhaldandi vinnu við að greina verkefnið. Ég held að við séum á réttri leið og að ekki sé þörf á að gera stefnubreytingu á grundvelli þess sem núna er uppi. (Forseti hringir.) Ég hefði viljað segja nokkur orð um Hjólað í vinnuna en ég geri það í seinna andsvari.

(Forseti (SJS): Það verður að koma síðar.)