150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

stefna í samgöngumálum.

[15:43]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegur forseti. Ég held að það hafi verið óþarfi af hæstv. ráðherra að gefa sér að við værum ekki sammála í öllum þessum málum. Ég verð t.d. að hrósa hæstv. samgönguráðherra fyrir þá stefnu sem hann tók upp nýverið, að leggja áherslu á útvíkkun samgönguæðanna út úr Reykjavík, m.a. með því að ljúka Reykjanesbrautinni, og með því að breikka æðarnar inn á Suðurlandið. Þetta eru gríðarlega mikilvægar samgöngubætur og virkilega arðbærar. Ég verð að segja að þótt ég væri ekki 1. þm. annars Reykjavíkurkjördæmisins, sem ég nú er, hefði ég bara sem borinn og barnfæddur Reykvíkingur mjög miklar áhyggjur af því að það skuli fara lítið fyrir raunverulegum samgöngubótum í Reykjavík, m.a. með mislægum gatnamótum á Kringlumýrarbraut/Miklubraut og við Grensásveg. Þetta eru arðbærar samgöngubætur sem draga úr slysum um 92% eins og rannsóknir sýna og ég vildi gjarnan sjá ráðherrann beita sér meira í þessu.

Svo vil ég að lokum líka spyrja hann: Hver er það sem ræður för við framkvæmd þessa samgöngusáttmála? (Forseti hringir.) Ég sé að borgarstjórinn í Reykjavík undirritaði samkomulag um hönnun og opnun á einhverjum brautarstöðum fyrir samgöngulínuna. Er samgönguráðherra ekki með puttann á púlsinum hér?