stefna í samgöngumálum.
Virðulegi forseti. Sjálfsagt erum við þingmaðurinn meira og minna sammála um þetta verkefni í heild sinni vegna þess að þetta er gott verkefni. Það ýtir undir fjölbreyttan samgöngumáta og hv. þingmaður byrjaði einmitt á að tala um að í Bretlandi væri verið að hvetja fólk til að hjóla vegna þess að almenningssamgöngur væru ekki í boði eins og hefði verið þörf fyrir. Það er verið að gera það hér núna að frumkvæði ÍSÍ í átjánda sinn og það hefur verið gríðarleg aukning á hverju einasta ári. Ég held að það sé mikilvægt. Hluti af þessum samgöngusáttmála er einmitt að koma verkefnum í gang og það er mikilvægt að við getum klárað hann og sett verkefni í gang strax í sumar og haust er lúta að því að gera fleiri göngustíga og fleiri hjólastíga vegna þess að það kallar á mannafla að framkvæma slík verkefni.
Ég er líka sammála hv. þingmanni að það er mikilvægt að horfa til umferðaröryggis og arðsemi framkvæmda og það er hluti af þessu verkefni núna að greina það betur. Sáttmálinn var auðvitað svona stóra myndin og að raða verkefnunum (Forseti hringir.) í réttri tímaröð þannig að farið verði sem fyrst í arðsömustu verkefnin sem skila okkur mestu umferðaröryggi og besta flæði í samgöngum.