150. löggjafarþing — 101. fundur, 11. maí 2020.
afbrigði.
Svo háttar til um 12. til og með 15. dagskrármál að þingmálunum var útbýtt eftir 1. apríl og svo háttar til með 13. dagskrármálið að ekki eru liðnir fimm dagar frá útbýtingu þess. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka málin á dagskrá. Forseti lítur svo á að afbrigðin séu samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum við því.
Enginn hreyfir andmælum og afbrigðin skoðast samþykkt. Geta málin komið til umræðu síðar á þessum fundi.