fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég ætla að gera grein fyrir breytingartillögu sem fram kemur á þskj. 1368 og er mál 724. Þetta eru tæknilegar breytingar en ekki efnislegar, koma inn á milli 2. og 3. umr. og eru leiðréttingarfærslur. Annars vegar er leiðrétting á 200 millj. kr. framlagi til Rannsóknasjóðs sem var ranglega skráð á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og er leiðrétt, á að fara á mennta- og menningarmálaráðuneyti á sama málaflokk. Svo er hér hins vegar hagræn skipting þar sem um er að ræða rekstrarframlag en ekki rekstrartilfærslu sem felur í sér að greiðsla úr ríkissjóði nýtist í raun þriðja aðila en ekki ríkissjóði beint, við erum ekki að kaupa þjónustu. Þetta er framlag til félagasamtaka sem styðja við viðkvæma hópa samfélagsins með félagslegum stuðningi, matarúthlutunum og fleiru í þeim dúr. Það ætti því ekki að sitja í okkur hv. þingmönnum að samþykkja þessar tvær breytingartillögur sem lagðar eru til milli 2. og 3. umr. um fjáraukalagafrumvarp.