150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[15:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í morgun kom fjárlagaráð í heimsókn til okkar í fjárlaganefnd og var spjallað um ýmiss konar atriði tengd lögum um opinber fjármál og ástandið eins og það er í dag. Mig langaði bara til að spjalla aðeins við hv. formann fjárlaganefndar um þær aðstæður sem við erum að glíma við tengdar því fjármálaráði sem við höfum og sambærilegum ráðum í nágrannalöndum okkar, og mismunandi hlutverkum sem þau hafa. Vakin var athygli á því að álitsgefandi hlutverk fjármálaráðs væri tiltölulega rýrt og kannski skorti að skerpa á því í lögunum að hlutverk þess gæti verið meira. Tekið var dæmi um sóttvarnalækni sem er að veita heilsufarsleg álit í ákveðnu krísuástandi, hvort ekki væri eðlilegt að eitthvað eins og fjármálaráð, einhver svipaður álitsgjafi, væri til halds og trausts fyrir þingið í slíku ástandi og jafnvel bara almennt séð. Í Svíþjóð er skýrsla gefin út tvisvar á ári óháð ástandinu, hún er að koma út í Svíþjóð þessa dagana, bara af því að það er reglubundinn frestur á þeim álitum. Ég spyr hvort við þurfum ekki að fara að setja aðeins í slíkan gír á Íslandi líka. Nú erum við að fara inn í þriðja pakkann í viðbrögðum við ástandinu og það væri mjög hjálplegt að hafa óháðan aðila, sjálfstæðan, eins og fjármálaráð er, á þeirri vegferð.