fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir að taka þetta hér upp. Þetta tengist í engu þeim breytingartillögum sem ég var að útskýra í ræðu, en látum það liggja á milli hluta vegna þess að þetta er mjög góð spurning. Það er rétt að við fengum fjármálaráð á okkar fund og það hefur komið glögglega í ljós, í samtölum millum þingmanna í umræðu um fjáraukalagafrumvarpið og þau mál sem hér liggja fyrir, að mörgum finnst vanta óháð hlutlægt mat á þeim aðgerðum sem við erum að taka hér til umfjöllunar. Og góðu heilli, af því að undirbúningur laga um opinber fjármál stóð nú í langan tíma, var hlutverk fjármálaráðs skrifað inn í þau lög, í 13. gr., að ekki síst þingið fengi óháð hlutlægt mat. Það hefur reynst mjög vel. Í 10. gr. er síðan kveðið á um endurskoðun fjármálastefnu, en þá skal fjármálaráð gefa þetta hlutlæga óháða mat, og það er sjálfstætt í störfum sínum. Það er jafnframt mikilvægt í þeim efnum.
Ég lít svo á að þessi fundur okkar í morgun með fjármálaráði sé í raun upphafið að rýningu á lögunum þegar að þessu kemur. Ég held að það sé alveg kominn tími til að rýna lögin í heild sinni en sérstaklega þegar kemur að þessum óvenjulegu kringumstæðum. Það má alveg gera ráð fyrir því að við förum í gegnum krísu að nýju og forsendur stefnu og áætlana bresti. Þá gætum við haft tæki til að grundvalla betur umræðu um slíkar aðgerðir sem við erum að fást við í þinginu alla daga.