150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[15:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Bara til að hafa það á hreinu, svo að maður komi nú að breytingartillögunni, þá lítur hún bara eðlilega út. Það er verið að færa milli staða, ekkert að því, svo að það sé afgreitt. En andsvarið snýst meira um hlutverk fjárlaganefndar í afgreiðslu þessa máls, og er beint til formanns fjárlaganefndar, frekar en beinlínis um flutning hans á þessari breytingartillögu. Í lögum um opinber fjármál er tekið fram að Alþingi skuli veita umsögn sína um tillögu um hvort fullgilt tilefni sé til endurskoðunar á gildandi stefnu. Nú hefur það verið tilkynnt fyrir þó nokkru að ný fjármálastefna verði flutt án þess þó að við höfum séð álit um hvort fullgilt tilefni sé til þess. Ég ætla ekki að efast um að tilefnið sé fullgilt en það er alltaf gott að sjá rökstuðninginn fyrir því í hvers konar feni við erum, hvaða forsendur, hvaða þættir fjármálastefnu og fjármálaáætlunar hafa brostið og á hvaða hátt. Þetta er mjög nauðsynlegt fyrir okkur og fyrir umræðuna á Alþingi þegar við erum að taka við tillögum frá ríkisstjórninni, sem er núna án markmiða og án stefnu miðað við gildandi fjármálaáætlun. Það er alla vega ekkert sem við höfum séð sem styður við þær forsendur og þau markmið og þá stefnu sem lögð var til í fjármálaáætlun. Þegar ég hef spurt um það hefur bara verið talað um að reyna að verja stöðuna að einhverju leyti en aldrei hefur verið vísað í ákveðin markmið samkvæmt fjármálaáætlun. Við erum með mjög lausa stöðu núna gagnvart lögum um opinber fjármál þar sem stefnan er tilkynnt laus en við höfum enn ekki fengið neinn rökstuðning fyrir því á hvaða hátt það er eða hver markmiðin eru.