fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni mjög svo góðar vangaveltur og seinna andsvar snýr kannski meira að 10. gr. sem fjallar um það sem gerist þegar slíkar aðstæður koma upp og forsendur stefnu og áætlana bresta og þá er eiginleg stefna ekki í gildi. Þetta tengist jafnframt hlutverki fjármálaráðs, hversu víðtækt það á að vera og þá með tilliti til annarra stofnanainnviða sem sinna þessum málum. Ég nefni Hagstofuna, Seðlabankann, fjármálaráðuneytið með sína sérfræðinga o.s.frv. Þetta er eilítið misjafnt á milli þjóða. Við lítum mjög til sviðsmynda og ráðlegginga sem koma frá alþjóðastofnunum, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fleiri aðilum, og er misjafnt fyrirkomulag á því eftir þjóðum. Nú er hlutverk fjármálaráðs, í hlutlægu áliti sínu, mjög tengt þeim grunngildum sem liggja að baki stefnu og áætlun, m.a. um sjálfbærni og um varfærni. Við þurfum að rýna þetta allt í samhengi, alla þá þætti sem hv. þingmaður fór ágætlega yfir, og ég er þeirrar skoðunar að við eigum að skrifa þetta skýrar í lögin. Ég er jafnframt þeirrar skoðunar, eftir reynslu af álitsgerðum fjármálaráðs, að hlutverkið eigi að vera víðtækara og eigi að haldast við slíkar kringumstæður sem við erum að kljást við hér. Það myndi nýtast þinginu afar vel, það er mín skoðun. Ég held að við ættum að læra af þessu og fara í þá vinnu.