fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Ég ætlaði nú bara að halda örstutta ræðu í ljósi þess að breytingartillögur stjórnarandstöðunnar komu til atkvæða rétt fyrir helgi, í skjóli myrkurs má segja. Við greiddum atkvæði um breytingartillögu stjórnarandstöðunnar kl. hálfellefu á fimmtudagskvöldið og það er kannski ekki alveg víst að allir hafi áttað sig á því hvað þar fór fram. Mig langar í dagsbirtu að hlaupa hratt yfir það hvað gerðist hér á fimmtudaginn þegar kom að afgreiðslu þessara breytingartillagna frá stjórnarandstöðunni því að það skiptir máli hvað menn gera í þessum sal.
Það sem gerðist í þessum sal var að stjórnarandstöðuflokkarnir samþykktu allar tillögur stjórnarflokkanna, allar. Sérhverja tillögu frá Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum samþykktu allir fimm stjórnarandstöðuflokkarnir. Stjórnarandstöðuflokkarnir sameinuðust um hógværar tillögur sem hefðu bætt fjáraukann til muna en engin þeirra hlaut brautargengi. Þarna var tillaga, eins og frægt er orðið, um að heimila námsmönnum að fá atvinnuleysisbætur. Það var fellt. Þarna var tillaga um að hækka atvinnuleysisbætur um 10%. Það var fellt. Þarna var tillaga um að styrkja þau litlu fyrirtæki sem eiga rétt á stuðningslánunum en ekki rétt á lokunarstyrkjunum. Þarna var tillaga um að rétta örlítið til fyrirtækja í veitingahúsageiranum, í ferðaiðnaðinum o.s.frv., styrki með sambærilegum hætti og svokölluð lokunarfyrirtæki njóta góðs af. Þarna var tillaga um að frysta lán ferðaþjónustufyrirtækja tímabundið. Það var fellt. Þarna var tillaga um að auka stuðning til fjölmiðla eins og til stóð, hæstv. forseti, um 350 millj. kr. Það var fellt af ríkisstjórnarflokkunum. Þarna var tillaga um að auka álagsgreiðslur til framlínufólks í heilbrigðis- og félagsþjónustunni þannig að það myndi líka taka til starfsfólks allra hjúkrunarheimila, ekki bara sumra, sömuleiðis til löggæslu. Það var fellt. Þarna var tillaga um að tryggja einskiptisgreiðslu upp á 100.000 kr. til öryrkja og eldri borgara. Það var fellt. Örlítill stuðningur við SÁÁ, upp á 100 millj. kr., sem eru að glíma við sína lengstu biðlista í sögunni. Sömuleiðis eru þeir að kljást við fordæmalaust tap í ljósi aðstæðna upp á 100 milljónir. Það var fellt. Þarna voru líka tillögur sem voru felldar sem lutu að því að auka fjármuni til Tækniþróunarsjóðs, til Kvikmyndasjóðs, í Framkvæmdasjóð ferðamanna, Sóknaráætlanir landshluta, til ungra frumkvöðla. Þarna var líka tillaga um að lækka tryggingagjald. Sumir Sjálfstæðismenn telja að þeir séu einu málsvarar fyrirtækja, það er bara alls ekki. Það er kannski ágætt að fólk viti að þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem stæra sig af því að vera alltaf málsvarar þess að lækka skatta á fyrirtæki felldu allar tillögur stjórnarandstöðunnar um að lækka tryggingagjald.
Verkin tala sínu máli, herra forseti, og mér finnst mikilvægt að það heyrist úr þessum stól í dagsbirtu með hvaða hætti ríkisstjórnarflokkarnir fara með vald sitt hér og gefa í raun afskaplega lítið fyrir yfirlýsingar, sínar eigin yfirlýsingar, um að okkur beri öllum að standa saman og að ekki skipti máli hvaðan gott kemur.
Fimmtudagskvöldið sást það afskaplega skýrt að það virðist skipta öllu máli hvaðan tillögur koma, herra forseti. Mér finnst það sorglegt, í ljósi þeirra aðstæðna sem hér eru, að engin þeirra hafi verið samþykkt. Ég er ekkert að ætlast til þess að allar þessar tillögur hljóti brautargengi. En fyrr má nú vera, herra forseti. Hvernig stendur á því, þar sem þessir flokkar boðuðu ný vinnubrögð í upphafi valdatíma síns, um að efla þingið o.s.frv., að engin af tillögum okkar í þessari atrennu hlaut brautargengi? Ég minni sömuleiðis á að í fjárauka eitt, í fyrsta aðgerðapakkanum, var engin tillaga stjórnarandstöðunnar samþykkt. Að lokum, í ljósi þess að þriðji aðgerðapakkinn er að koma nú um helgina, vil ég hvetja þessa ágætu þingmenn í Vinstri grænum, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki til að hugsa aðeins sinn gang þegar kemur að tillöguflutningi stjórnarandstöðunnar í þessum þingsal. Ég veit að við náum ýmsu í gegn í nefndunum en fyrr má nú vera að þið getið ekki einhvern tímann sameinast um eitthvað af okkar tillögum og stutt þær. Bak við luktar dyr segið þið mörg við okkur að þið styðjið margar þessar tillögur. Sýnið það í verki, mínir ágætu kollegar.