150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[16:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Örstutt innlegg í umræðuna: Ástæðan fyrir því að ég kem hingað upp er að illu heilli felldu allir ríkisstjórnarflokkarnir einróma tillögur stjórnarandstöðunnar sem voru margvíslegar en báru það allar með sér að reyna að takast á við ástandið, m.a. að stuðla að fjölbreytni í störfum. Einnig voru ýmsar samgöngutillögur sem ég fer aðeins betur yfir á eftir. Það sem vekur athygli mína er að í millitíðinni, síðan ríkisstjórnarflokkarnir stráfelldu allar þessar tillögur á fimmtudagskvöldið, hafa komið margvíslegar yfirlýsingar af hálfu ráðherra í ríkisstjórninni sem gefa sannarlega til kynna að það er ekki endilega einhugur í öllum aðgerðum þeirra og greinilega einhver tími sem fer í það hjá stjórnarflokkunum að ná samstöðu. Við sáum það í óundirbúnum fyrirspurnum og heyrðum hér áðan að það er greinilega ekki eining eða samhugur í því t.d. hvaða leið eigi að fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja. Sjálfstæðisflokkurinn, klassíkin þar er náttúrlega að vera alltaf á móti borgarlínu þrátt fyrir að búið sé að samþykkja mjög skýra línu. Formaður utanríkismálanefndar kom hingað upp og spurði samgönguráðherra hvað þetta varðar. Þetta veldur mér áhyggjum að því leyti til að í staðinn fyrir að fara í mun stærri og meiri innviðauppbyggingu, fjárfestingar, strax, flýta framkvæmdum sem voru á áætlun, gera það sem þarf að gera sem allra fyrst, veita vonir um að farið verði í þessar framkvæmdir, ver ríkisstjórnin frekar tíma sínum í að ná einhverri sátt um það hvaða framkvæmdir eigi að fara í og næst ekki einu sinni sátt um það. Þeir dagar sem eru liðnir frá fimmtudeginum, og þeir eru ekki margir, gefa ákveðna vísbendingu um að það er strögl innan ríkisstjórnarinnar að halda fólkinu sínu góðu.

Áherslurnar eru náttúrlega mismunandi. Við sjáum það til að mynda varðandi Icelandair. Ég hefði gjarnan viljað fá, t.d. hjá samgönguráðherra eða ferðamálaráðherra, einhverja sýn á það. Það er það sem skortir náttúrlega hjá þessari ríkisstjórn, sýn, vegvísi, leiðsögn. Við fengum hana hjá heilbrigðisþríeykinu. Við erum að ná tökum á veirunni. Við erum að ná tökum á heilbrigðisþættinum en efnahagsþátturinn og leiðsögnin, forystan, þetta vantar miklu frekar en þá viðbragðspólitík sem ríkisstjórnin sýnir. Ég hefði til að mynda viljað sjá forystu, leiðsögn um það hvernig við sjáum samgöngur til og frá landinu til skemmri og lengri tíma. Hvað vill fjármálaráðherra? Mér heyrðist hann vera á öðru rófi en aðrir þingmenn stjórnarflokkanna. Það þarf skýra leiðsögn hér, það þarf að tala skýrt, bæði til starfsfólks Icelandair en líka til þjóðarinnar, um það hvernig við ætlum að tryggja að við getum haldið áfram að byggja upp eða endurræsa ferðaþjónustuna þegar þar að kemur. Óvissa er ekki af hinu góða, sem er það sem hefur einkennt dagana frá fimmtudagskvöldinu síðan atkvæðagreiðsla eftir 2. umr. fór fram.

Það er annað sem vekur mig til umhugsunar sem var sagt um helgina og það voru orð hæstv. félags- og barnamálaráðherra í Silfrinu í Ríkisútvarpinu. Þar dró hann fram viðhorf sitt til námsmanna og fannst mér afar miður hvernig það var sett fram. Sagðist hann ekki hvatamaður þess að hvorki námsmenn né aðrir á atvinnuleysisbótum fengju fjármagn úr ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt. Hann sagðist frekar vilja koma öllu þessu fólki í virkni og þar með færi fjármagnið í uppbyggingu. Þetta sagði ráðherra á sunnudaginn. Við erum nú að ræða fjáraukalaögin í 3. umr. Það er enn þá hægt að breyta þessu og koma fólkinu til virkni en ríkisstjórnarflokkarnir stráfelldu allar tillögur okkar í stjórnarandstöðunni um það einmitt að ná því fram, að koma fólkinu, hvort sem það eru námsmenn eða aðrir, í störf, í virkni. Við í Viðreisn lögðum fram mjög einfalda tillögu um þetta, um að framlag til sumarstarfa námsmanna yrði 3,2 milljarðar kr. og gildissviðið yrði útvíkkað þannig að það næði einnig til almenna markaðarins, þannig yrðu til fleiri og fjölbreyttari störf. Þessu hafnaði félagsmálaráðherra og reyndar fjármálaráðherra frá Sjálfstæðisflokknum líka sem talar í aðra röndina um mikilvægi starfa á einkamarkaði, í einkageiranum, en stráfellir í hina röndina tillögur um að reyna að víkka út gildissvið þessara tillagna.

Það kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir að ekki sé reynt að koma í veg fyrir það sem kvartað er undan og hefði verið hægt að koma í veg fyrir með því að taka undir eitthvað af þeim tillögum sem stjórnarandstaðan lagði fram til þess að koma fólki í störf og í virkni. Ef það er ekki hægt þá einfaldlega verður að taka tillit til þessa tímabundna ástands sem við erum í og samþykkja m.a. tillögu sem kom fram um að námsmenn geti sótt um atvinnuleysisbætur hafi þeir sinnt ákveðnu hlutfalli á vinnumarkaði í tiltekinn tíma. Við vitum að tæp 70% námsmanna vinna með námi og er hlutfallið hvergi jafn hátt innan Evrópu. Svo er verið að umgangast námsmenn eins og þeir hafi ekki áunnið sér neinn rétt meðan þeir eru úti á vinnumarkaði samhliða námi. Hvers konar er þetta hjá ríkisstjórninni?

Það góða við alla þessa viðtalsþætti síðustu þrjá daga er að þeir draga fram að mínu mati vanmátt og fálmkenndar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar þegar kemur að því að byggja hér upp. Það er ekki þannig að það skorti tillögur í þeim efnum og það hefur sýnt sig að tillögur stjórnarandstöðunnar hafa aldeilis ekki verið yfirboð, aldeilis ekki. Það er verið að snerta á því sem brennur á fólki hér úti, eyða óvissu, koma fólki í störf, veita fólki tækifæri, valfrelsi í þessum annars erfiðu aðstæðum. Þess vegna er það brýning mín til ríkisstjórnarflokkanna að þeir noti tækifærið. Við erum í 3. umr. fjáraukalaga. Reynið að koma einhverju í verk varðandi það að koma til móts við þá hópa sem við höfum verið að ræða, eins og námsmenn. Ég bíð spennt eftir því hvað verður kynnt á morgun af hálfu hæstv. menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra varðandi tillögur í tengslum við námsmenn. Þau hljóta að fara að hlusta á það sem námsmenn hafa verið að segja hvað þetta varðar. Þau hafa sólarhring til stefnu.

Hæstv. samgönguráðherra er að vissu leyti vorkunn vegna þess að hann hefur samgönguráðherra á bakinu, nokkra reyndar, úr hinum ríkisstjórnarflokkunum sem vildu hafa setið í hans stóli. Fyrir vikið er það handahófskennt að mínu mati hvernig tillögur um uppbyggingu samgöngumannvirkja eru settar fram. Það þarf að gera meira í uppbyggingu innviða. Það þarf að gera miklu meira. Þess vegna hefði ég kosið að við hefðum verið að ræða annað og meira en hið svonefnda PPP-frumvarp samgönguráðherra hér í síðustu viku, eitthvað sem kemur okkur strax í framkvæmdir, í það að hanna, teikna o.fl. í samgöngumálum.

Síðan eru það náttúrlega tillögur okkar sem beindust fyrst og síðast að nýsköpun, rannsóknum og þekkingu, þekkingargreinunum. Það var synd að sjá enn og aftur að tillögur okkar í stjórnarandstöðunni skyldu ekki hafa hlotið hljómgrunn, t.d. varðandi tryggingagjaldið sem er eitt af þeim málum sem nokkrir flokkar í stjórnarandstöðunni lögðu fram til að gæta að störfunum, reyna að tryggja þau og setja inn hvata fyrir fyrirtæki til þess að ráða m.a. inn fólk af atvinnuleysisskrá. En það var ekkert hlustað á það. Því var öllu ýtt til hliðar. Það sem mér fannst einna sárast að sjá var að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir skyldu ekki hafa tekið af meiri metnaði undir tillögur okkar varðandi eflingu enn frekari nýsköpunar, rannsókna og þróunar. Ég hef bent á það hér áður að ef það er eitthvað sem allar þjóðir heims eru að gera núna í þessum faraldri er það að undirbúa sig enn frekar undir grimmilega samkeppni um fólk, mannauð, hugvit og þekkingu. Þá þurfum við að vera búin að vinna heimavinnuna okkar. Þá þurfa sjóðir, styrkir, stuðningskerfið að vera þannig að við getum staðist þá samkeppni. Það sýnir sig að 75% þeirra sem standa fyrir nýsköpun og sprotafyrirtækjum segja að íslenska krónan sé hindrun, sé ákveðin fyrirstaða. Meðan við búum við krónuna þurfum við einfaldlega að setja enn meira í sjóði, í styrki, í starfsemina, hvort sem það er innan Rannís, Tækniþróunarsjóðs eða annars staðar.

Við verðum að horfast í augu við það að tillögurnar verða líka að bera merki þess að við áttum okkur á stöðunni sem við erum í í dag. Við erum ekki með forskotið, samkeppnisforskotið, meðan við búum við íslensku krónuna. Þá verða þær tillögur sem snerta sjóðina að innihalda slíkan raunveruleika. Mér fannst vont að sjá að ekki væri tekið tillit til þess. Fyrir utan það hefði endurgreiðsluhlutfall varðandi rannsóknir, þróun og nýsköpun mátt vera enn hærra, en það er önnur saga.

Þetta var allt fellt og við sjáum hvað setur núna, hvaða tillögur ríkisstjórnin mun koma með í þessari viku. Vel að merkja er búið að gefa fyrirheit um að fara eigi af stað með breytingar á atvinnuleysisbótum, m.a. að ríkissjóður greiði uppsagnarfrestinn. Það er búið að boða það en við höfum ekki séð hvernig það frumvarp verður og hvernig það mun líta út. Mun það breytast mjög til að mynda eftir því hvernig málum Icelandair vindur fram?

Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að mér fannst þetta vera samhengislaust. Mér fannst þetta vera fálmkennt á fimmtudagskvöldið þegar við fórum yfir hlutina og málefnin og röksemdafærslu okkar, sama kvöld og allir ríkisstjórnarflokkarnir felldu tillögur okkar. Eftir viðtöl helgarinnar við ráðherra í ríkisstjórn er alveg ljóst að það þarf mun skýrari stefnu. Það þarf mun skýrari leiðsögn, mun skýrari forystu þegar kemur að efnahagsmálum. Ég brýni ríkisstjórnina: Takið ykkur almannavarnateymið til fyrirmyndar þegar kemur að leiðsögn, þegar kemur að útskýringum, þegar kemur að svörum fyrir þjóðina á þessum tímum kórónuveirunnar. Við sem erum í stjórnarandstöðunni þurfum að vera vakandi. Við þurfum að veita aðhald. Það sem má alls ekki fara í sóttkví er lýðræðislegt aðhald og því munum við í Viðreisn halda áfram að sinna bæði í þingsal sem utan hans.