150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 311/2019 um breytingu á X. viðauka og XIX. viðauka við EES-samninginn.

616. mál
[16:49]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á X. viðauka EES-samningsins á þskj. 1349. Málið varðar almenna þjónustu og neytendavernd. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fulltrúa frá utanríkisráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur nefndin því til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita, fyrir utan þá sem hér stendur, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, en Logi Einarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.