150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi.

596. mál
[16:56]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. flutningsmanni nefndarinnar fyrir að flytja þetta nefndarálit. Eins og hv. flutningsmaður kom inn á er þetta mál, þótt það láti ekki mikið yfir sér, um margt fróðlegt og snertir ýmislegt eins og orkuskipti í samgöngum. Það var mjög áhugavert að fá einmitt umræðuna um það í nefndinni og er nokkuð sem ég held að við þurfum að ræða miklu meira í þinginu. Í ljósi tækniþróunar á síðustu árum er ljóst að það er miklu fjölbreyttara úrval af endurnýjanlegu eldsneyti og hröð tækniþróun varðandi allt þetta. Þess vegna er mikilvægt að við séum vel með á nótunum og bregðumst hratt við sem löggjafi þegar nýir orkugjafar koma.

Mig langaði sérstaklega að vekja athygli á umsögn Samorku sem er einmitt komið inn á í nefndarálitinu. Það er vægast sagt jákvætt og mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það. Samorka segir í umsögn sinni, með leyfi forseta:

„Samorka hvetur því Alþingi og stjórnvöld til að horfa til slíkra möguleika við lagasetningu og stefnumótun á næstu árum. Þar þarf sérstaklega að tryggja að nægilegt framboð af orku sé til staðar til að orkuskiptin geti gengið hratt og vel fyrir sig, og að lagaumhverfi framkvæmda hindri ekki nauðsynlega uppbyggingu innviða.“

Samorka segir í raun og veru að innan lands séu næg úrræði til að framleiða orku og orkugjafa, hvort sem það er vetni, metan, metanól, ammoníak, lífdísill eða annað, og mig langaði að spyrja hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur hvort hún sé sammála þessu mati Samorku og hvort hún telji að þingið ætti að skoða betur tækifæri til framleiðslu innlends eldsneytis.