endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur kærlega fyrir andsvarið. Það kemur líka úr góðri átt vegna þess að hv. þingmaður er einmitt mikil áhugamanneskja um endurnýjanlega orkugjafa. Það er algjörlega hárrétt sem hv. þingmaður segir, hér er mál sem lætur ekki mikið yfir sér í þingstörfunum en snertir orkuskiptin sem við erum að sigla inn í og þurfum að taka skýra sýn og stefnu þar um.
Ég tek undir með hv. þingmanni, umsögn Samorku var einkar ánægjuleg þar sem samtökin styðja framgang frumvarpsins og vekja einnig máls á þeim tækifærum sem til staðar eru hér á landi til að framleiða endurnýjanlegt eldsneyti til að skipta út fyrir jarðefnaeldsneyti. Það sem er ánægjulegt svo ég svari hv. þingmanni er að nefndin öll tók undir mikilvægi þess að stjórnvöld líti til möguleika á framleiðslu endurnýjanlegs eldsneytis hérlendis. Það er hárrétt sem fram kom í andsvarinu, úr nógu er að moða. Það er nóg af tækifærum og ég held að akkúrat núna séu tækifæri og tímar til að líta fram á við og vera frjó í hugsun þegar kemur að því að nýta möguleikana hér. Ég veit að hv. þingmaður er mikil áhugamanneskja þar um og hefur margar og góðar hugmyndir sem ég efast ekki um að komi fram í fjölmörgum þingmálum hv. þingmanns.