ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 259/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar sem liggur fyrir á þskj. 1352. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund sérfræðing frá utanríkisráðuneyti og sérfræðing frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur nefndin því til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálitið skrifa, auk þeirrar sem hér stendur, Smári McCarthy, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, en Logi Einarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.